Fara í efni

Úthlutun úr Snorrasjóði

29.12.2023 Fréttir Djúpivogur

Síðastliðinn fimmtudag fór fram úthlutun úr Snorrasjóði og er þetta í fimmta sinn sem styrkur er veittur úr sjóðnum. Úr sjóðnum eru veittar 500.000 kr einum nemanda einu sinni á ári. Að þessu sinni var það Jens Albertsson sem hlaut námsstyrkinn en hann stundar nám í matvælafræði við Háskóla Íslands. Margar góðar umsóknir bárust að þessu sinni og úr vöndu var að ráða en Jens er vel að styrknum kominn enda er framleiðsla matvæla í örum vexti á svæðinu. Stjórn Snorrasjóðs óskar Davíð til hamingju með styrkinn.

Snorrasjóður var stofnaður árið 2019 af frumkvæði Gunnþóru Gísladóttur frá Papey til minningar um Snorra Gíslason bróður sinn og tilgangur sjóðsins er að styrkja ungt fólk úr Djúpavogshreppi til náms.

Snorri Gíslason frá Papey fæddist 4. ágúst 1915. Snorri var mikill hagleiksmaður og byrjaði hann snemma að smíða ýmsa muni svo sem húsgögn og ýmislegt smálegt. Snorri fékkst lengi vel við að smíða líkön af bátum og voru þeir eftirsóttir vegna þess hversu vandaðir þeir voru. Fínleiki bátanna vakti athygli en allt var handunnið, möstrin mótuð með hefli og sandpappír og voru bátarnir nákvæm eftirmynd af bátum í fullri stærð.

Snorri var 10 ára gamall þegar hann fór fyrst í land. Þá var farið á árabát. Pabbi hans og Ingólfur bróðir reru, þetta var ullarferð að sumarlagi, verið að skila ullinni til innlagnar á Djúpavog og Snorri fékk að fara með. Þegar í land var komið fékk Snorri að fara í verslunina þar sem hann gat keypt gráfíkjur og kandís. Eftir þetta fór Snorri einu sinni eða tvisvar í land fyrir fermingu.

Upp úr 1940 tók Snorri til við að setja upp vindrellu í Papey og setti hann svo upp hleðslustöð og lagði rafmagn í húsið. Með þessari framkvæmd varð Papey eitt af fyrstu húsunum á Djúpavogi sem fékk rafmagn. Snorri fluttist í land árið 1949 þá 34 ára gamall og settist að í húsi sem ber sama nafn og bærinn í Papey, Bjarg. Seinna meir festi hann sólarrafhlöðu utan á húsið þar sem hann safnaði rafmagni til heimilisnota.

Snorra féll sjaldan verk úr hendi og hann var að vinna við endurbætur á húsinu sínu eða smíða skipslíkön fram á síðustu ár. Snorri lést á hjúkrunarheimilinu á Höfn 29. júní 2014 á nítugasta og níunda aldursári.

Úthlutun úr Snorrasjóði
Getum við bætt efni þessarar síðu?