Fara í efni

Skólaþjónusta

Skólaþjónusta Múlaþings hefur farsæld barna og fjölskyldna að leiðarljósi í starfi sínu, starfar af fagmennsku í sérhverju verkefni og vinnur að forvörnum sem tryggja farsæld og velferð til framtíðar. Einkunnarorð Skólaþjónustunnar eru

Farsæld - Fagmennska - Forvarnir 

Starfsemi skólaþjónustunnar er bundin í reglugerð um skólaþjónustu sveitarfélaga við leik- og grunnskóla og nemendaverndarráð í grunnskólum nr. 444/2019. Reglugerðin á stoð í 21. og 22. gr. laga um leikskóla nr. 90/2008 og 40. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008, með síðari breytingum. Skólaþjónusta Múlaþings sinnir sérfræðilegum stuðningi við grunn- og leikskóla í sveitarfélaginu skv. reglugerð um hlutverk og markmið skólaþjónustu 2. gr. Jafnframt byggir Skólaþjónusta Múlaþings starfsemi sína á lögum samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna nr. 86/2021.

  • Skólaþjónusta tekur annars vegar til stuðnings við nemendur í leik- og grunnskólum og foreldra þeirra og hins vegar stuðnings við starfsemi skóla og starfsfólk þeirra.
  • Markmið með skólaþjónustu sveitarfélaga er að kennslufræðileg, sálfræðileg, þroskafræðileg og félagsfræðileg þekking nýtist sem best í skólastarfi.
  • Skólaþjónusta skal beinast að því að efla skóla sem faglegar stofnanir sem geti leyst flest þau viðfangsefni sem upp koma í skólastarfi og veita starfsfólki skóla leiðbeiningar og aðstoð við störf sín eftir því sem við á.

Píramídi skólaþjónustu Múlaþings

 


Starfsfólk skólaþjónustu Múlaþings eru

  • Eyrún Björk Einarsdóttir, talmeinafræðingur
  • Jarþrúður Ólafsdóttir, kennsluráðgjafi
  • Marta Wium Hermannsdóttir, leikskólafulltrúi
  • Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttir fræðslustjóri, veitir starfseminni forstöðu.
  • Stefanía Malen Stefánsdóttir, grunnskólafulltrúi

Samið hefur verið við sálfræðinga um þjónustu og heimsækja þeir skólana reglulega. Einnig verður leitað til annarra sérfræðinga, s.s. atferlisfræðings, eftir þörfum.


Farsældarþjónusta Múlaþings

Skólaþjónusta Múlaþings er hluti af starfsemi á Fjölskyldusviði og er skipulag og framkvæmd þjónustunnar í nánum tengslum við og oft mjög samþætt starfsemi Austurlandslíkansins. Skólaþjónustan og Austurlandslíkanið starfa þétt saman í því skyni að leysa farsællega úr málefnum barna og fjölskyldna þeirra og mynda farsældarþjónustu Múlaþings. 

Farsældarþjónustuteymi Múlaþings fer yfir allar tilvísanir sem berast til skólaþjónustu og hittist teymið að jafnaði tvisvar sinnum í mánuði. Í teyminu sitja fulltrúar frá skólaþjónustunni og fulltrúi Austurlandslíkansins, þeir eru

  • Anna Alexandersdóttir , Austurlandslíkanið
  • Jarþrúður Ólafsdóttir, kennsluráðgjafi
  • Marta Wium Hermannsdóttir, leikskólafulltrúi

Verkferlar í leik- og grunnskólum

Verkferlar í leik- og grunnskólum Múlaþings leitast við að afgreiða mál barna í vanda á sem skilvirkastan hátt. Mikilvægt er að nýta þau úrræði og aðferðir sem skólinn býr yfir og þá þekkingu og reynslu sem býr í mannauð skólans til að vinna með barnið um leið og grunur um vanda vaknar.

Ferli farsældarþjónustu í skóla fyrir einstaklinga

Ferli farsældarþjónustu í skóla fyrir hópa

Síðast uppfært 04. ágúst 2023
Getum við bætt efni þessarar síðu?