Fara í efni

Fatlað fólk

Þjónusta við fatlað fólk á heimilum sínum

Þjónusta á heimilum fatlaðs fólks er veitt samkvæmt lögum um þjónustu við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir. Um er að ræða persónulega aðstoð við athafnir daglegs lífs sem kemur til viðbótar við stuðningsþjónustu sem er veitt skv. lögum um félagsþjónustu sveitarfélaganna.

Markmiðið er að gera fólki með fötlun kleift að búa á eigin heimili í samræmi við þarfir og óskir hvers og eins. Um getur verið að ræða félagslegar leiguíbúðir eða sértækt húsnæðisúrræði.

Sótt er um húsnæðisúrræði á  þar til gerðum umsóknareyðublöðum.

Samþykktir og reglur sem félagsþjónustan starfar samkvæmt má finna hér

Ferðaþjónusta

Ferðaþjónusta fatlaðs fólks er veitt skv. 29. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991. Markmið þjónustunnar er að gera þeim sem ekki geta nýtt sér almenningsfarartæki vegna fötlunar kleift að stunda atvinnu og nám og njóta tómstunda.

Reglur um akstursþjónustu fyrir fatlað fólk

Umsókn um akstursþjónustu fyrir fatlað fólk á Mínum síðum.

Styrkir vegna endurhæfingar

Veittir eru styrkir vegna námskostnaðar, verkfæra- og tækjakaupa vegna heimavinnu eða sjálfstæðrar starfsemi að endurhæfingu lokinni. Um ýmis verkfæri og tæki vegna náms eða í atvinnuskyni getur verið að ræða t.d. tölvukaup eða annað.

Reglur um styrki til náms, verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks

umsókn um styrk til náms, verkfæra- og tækjakaupa

Stólpi

Í Stólpa á fatlað fólk, sem ekki getur starfað á almennum vinnumarkaði, kost á félagslegri hæfingu og iðju. Hæfing er tímabundin alhliða starfs- og félagsleg þjálfun sem miðar að aukinni hæfni til iðju eða atvinnuþátttöku. Iðja felur í sér félagsþjálfun og einföld vinnuverkefni með áherslu á tengsl við almennan vinnumarkað. Iðja getur verið varanlegt úrræði. Ekki eru greidd laun í hæfingu/iðju.

Stólpi er til húsa að Lyngási 12, Egilsstöðum og síminn þar er 471 1090.

Facebooksíða Stólpa

Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA)

Lög um málefni fatlaðs fólks með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 er kveðið á um innleiðingu notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar (NPA).

Notendastýrð persónuleg þjónusta er byggð á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf. Í reglum félagsþjónustunnar um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk er tekið mið af handbók um NPA og leiðbeinandi reglum um innleiðingu notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar. Félagsþjónustan tekur á móti umsóknum t.d. í formi bréfs.

Gagnlegir tenglar

Stjórnarráðið | Réttindagæsla fyrir fatlað fólk (stjornarradid.is)

Ráðgjafar- og greiningarstöð

Landsamtökin Þroskahjálp (throskahjalp.is)

Geðhjálp (gedhjalp.is)

Tryggingastofnun ríkisins

Síðast uppfært 19. janúar 2024
Getum við bætt efni þessarar síðu?