Fara í efni

Skipulagsgátt: Nýr vefur skipulagsmála, umhverfismats og framkvæmdarleyfa

14.03.2024 Fréttir

Skipulagsstofnun hefur tekið í notkun Skipulagsgátt sem er landfræðileg gagna- og samráðsgátt um skipulag, umhverfismat og framkvæmdir. Þar er hægt að finna upplýsingar um öll mál í vinnslu, sjá hvar þau eru stödd í skipulagsferlinu, setja fram athugasemdir og ábendingar við mál á kynningartíma og nálgast endanleg gögn og afgreiðslur.

Eitt af markmiðum Skipulagsgáttarinnar er að einfalda og auka aðgengi að gögnum við gerð skipulags og undirbúning framkvæmda. Þannig geta almenningur, umsagnaraðilar og allir sem láta sig mál á þessum sviðum varða kynnt sér þau með skilvirkari hætti og komið á framfæri umsögnum eða athugasemdum sínum milliliðalaust.

Í gáttinni er kortasjá þar sem öll mál eru skráð með staðsetningu. Í kortasjánni er auðvelt að leita uppi mál í næsta umhverfi en einnig býður kortasjáin upp á að sía mál út frá tegund, hvar það er statt í skipulagsferlinu auk helstu efnisatriða. Einnig er hægt að vakta mál út frá hnitum ákveðinnar staðsetningar.

Öll skipulagsmál í Múlaþingi eru nú aðgengileg í gegnum gáttina og eru íbúar hvattir til að kynna sér þau mál sem eru í gangi hverju sinni.

Smelltu hér til að skoða mál í Múlaþingi í Skipulagsgáttinni

Áfram verða settar inn fréttir á heimasíðu sveitarfélagsins þegar mál eru í kynningar- eða auglýsingaferli. 

Athugasemdum og/eða ábendingum við skipulag í kynningu skal skila rafrænt í gegnum Skipulagsgátt.

Sé óskað ítarlegri upplýsinga um tillögur í kynningu er hægt að senda fyrirspurn á netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is eða hafa samband símleiðis við þjónustuver í síma: 4700700.

Skipulagsgátt: Nýr vefur skipulagsmála, umhverfismats og framkvæmdarleyfa
Getum við bætt efni þessarar síðu?