Fara í efni

Nýjar lóðir við Jörfa á Borgarfirði lausar til úthlutunar

06.02.2024 Fréttir Borgarfjörður

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings hefur samþykkt að auglýsa nýjar lóðir við Jörfa á Borgarfirði lausar til úthlutunar. Um er að ræða eftirfarandi lóðir: Miklaborg, Hólmaborg, Bakkaborg, Mýrartún, Smáraborg, Vörðuborg og Fjárborg.

Lóðirnar eru aðgengilegar á kortasjá Múlaþings þar sem hakað er við “Lausar lóðir” í valstiku. Þegar smellt er á viðkomandi lóð á korti opnast upplýsingagluggi þar sem er hægt að hlaða niður deiliskipulagi og lóðablaði ásamt frekari upplýsingum. Vakin er sérstök athygli á því að með öllum lóðarumsóknum skal fylgja staðfesting á greiðsluhæfi umsækjanda frá viðskiptabanka hans.

Umsóknarfrestur er til og með 18. mars 2024 og verður lóðum úthlutað á opnum afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa að Lyngási 12 á Egilsstöðum, þann 19. mars klukkan 11:00. Lóðunum verður úthlutað samkvæmt ákvæðum a) liðar 3. gr. reglna um úthlutun lóða hjá Múlaþingi.

A) Ráðið felur skipulagsfulltrúa að auglýsa lóðir til umsóknar. Lóðirnar skulu vera sýnilegar á heimasíðu sveitarfélagsins. Umsóknarfrestur skal eigi vera skemmri en tvær vikur frá birtingu auglýsingar. Í auglýsingu skal koma fram staður og dagsetning opins afgreiðslufundar skipulagsmála þegar úthlutun mun eiga sér stað.

Umsækjendur geta sótt um fleiri en eina lóð, en aðeins einu sinni um hverja lóð. Hverjum umsækjanda skal aðeins úthlutað einni lóð. Hjón eða einstaklingar með sama lögheimili skulu skila sameiginlegri umsókn og teljast einn umsækjandi.

Sé um íbúðarlóðir að ræða, kemur einstaklingur eða lögaðili sem þegar hefur fengið lóð úthlutaða til byggingar, í sveitarfélaginu, án þess að lóðarleigusamningur hafi verið gerður, ekki til greina við úthlutun. Ráðið getur þó heimilað að vikið sé frá skilyrðinu ef umsækjandi sýnir fram á að hann geti byggt upp á fleiri lóðum á eðlilegum hraða, lóðir eru í mismunandi byggðakjörnum og/eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Séu fleiri en einn umsækjandi um lóð eða lóðir í sömu úthlutun, skal dregið á milli þeirra og þeim raðað í þeirri röð sem þeir eru dregnir, þó ekki fleiri en fimm umsóknir um hverja lóð.

Þetta skal framkvæmt á opnum afgreiðslufundi skipulagsmála þar sem að lágmarki tveir starfsmenn umhverfis- og framkvæmdasviðs sitja.

Sé sami umsækjandi efstur á lista úrdráttar um fleiri en eina lóð gefst honum kostur á að velja á milli lóða innan viku frá úrdrætti. Berist ekki svar innan tímafrests þá velur skipulagsfulltrúi lóð til úthlutunar fyrir viðkomandi og úthlutar hinni eða hinum lóðunum til næsta umsækjanda í röðinni.
Verði lóðir afgangs eftir úthlutun, skal birta þær á heimasíðu sveitarfélagsins og úthlutað samkvæmt B lið.

 

Lóðirnar verða tilbúnar til afhendingar 15. ágúst 2024. Gata verður tilbúin í hæð undir jöfnunarlag (15 cm undir endanlegri hæð), lagnir lagðar og tengistútar veitna á lóðamörkum.

Gatnagerðargjöld verða innheimt samkvæmt valinni greiðsluleið við afhendingu lóða í ágúst.

Frekari upplýsingar um lóðirnar og fyrirkomulag við úthlutun má nálgast hjá skipulagsfulltrúa á netfanginu skipulagsfulltrui@mulathing.is.

Nýjar lóðir við Jörfa á Borgarfirði lausar til úthlutunar
Getum við bætt efni þessarar síðu?