Fara í efni

Ný stefna um Saman gegn sóun í bígerð

15.04.2024 Fréttir Borgarfjörður Djúpivogur Egilsstaðir Seyðisfjörður

Umhverfisstofnun hefur verið falið að endurskoða stefnu stjórnvalda um úrgangsforvarnir - Saman gegn sóun. Mikilvægur liður í þeirri vinnu er að fá innsýn í sjónarmið fólks, fyrirtækja, sveitarfélaga og stofnana um land allt.

Þann 22. apríl frá klukkan 13:00 - 15:30 verður Umhverfisstofnun með opinn fund á Hótel Valaskjálf þar sem þátttakendur fá fræðslu um þau tækifæri sem liggja í bættri nýtingu og minni sóun og færi á að koma með tillögur að aðgerðum. Starfsfólk ,,Saman gegn sóun" hjá Umhverfisstofnun segir frá verkefninu: Hver er staðan á Íslandi? Hvaða tækifæri eru til að gera enn betur? Einnig verða erindi frá aðilum á svæðinu og samtal um aðgerðir.

Hvað eru úrgangsforvarnir?

  • Hvernig komum við í veg fyrir að verðmæti verði að rusli?
  • Hvernig nýtum við hluti, efni og auðlindir betur og lengur?
  • Hvernig getur fjármagn og regluverk hjálpað fyrirtækjum í átt að minni sóun?
  • Hvaða ávinning hefur þetta allt saman í för með sér fyrir fyrirtæki og fólk?

Frítt inn og léttar veitingar – fundinum verður einnig streymt. Skráning er nauðsynleg en hægt er að lesa um viðburðinn hér.

Ný stefna um Saman gegn sóun í bígerð
Getum við bætt efni þessarar síðu?