Fara í efni

Hafnargata 40B til sölu, íbúðarhús og bílskúr

12.02.2024 Fréttir Seyðisfjörður

Múlaþing óskar eftir tilboðum í eignina Hafnargötu 40 B á Seyðisfirði.
Um er að ræða íbúðarhús og bílskúr sem seljast í sitthvoru lagi. Hafnargata 40B er einlyft timburhús á steyptum kjallara byggt árið 1929. Stærð húss er 77 m2 að grunnfleti. Bílskúrinn er 24 m2 og byggður árið 1979.

Sú kvöð fylgir sölu íbúðarhússins að það verði annað hvort flutt af lóðinni eða notkun þess verði breytt úr íbúðarhúsnæði í atvinnuhúsnæði. Múlaþing bíður nýjum eiganda lóð fyrir húsið við Oddagötu 3 eða 4.

Kjósi kaupandi að flytja íbúðarhúsið verður honum úthlutað lóð miðað við gildandi reglur um úthlutun lóða hjá Múlaþingi, að því frátöldu að lóðarúthlutunargjald og gatnagerðargjöld verða felld niður. Kaupandi skal standa skil á öðrum gjöldum samkvæmt gjaldskrá skipulags- og byggingarmála svo sem niðurrifs- og byggingaleyfisgjöldum. Gerð er sú krafa á kaupendur íbúðarhúss að þeir skili lóðinni án mannvirkja og sléttaðri innan tveggja ára frá kaupsamningi.

Kjósi kaupandi að breyta notkun hússins þannig að það verði atvinnuhúsnæði skal hann standa skil á gjöldum samkvæmt gjaldskrá skipulags- og byggingarmála svo sem byggingaleyfisgjöld vegna breytinga á húsnæði.

Ekki er gerð krafa um breytingu á skráningu bílskúrs eða flutning hans. Stofnuð verður stök lóð utan um hann ef þess gerist þörf.
Tilboðum skal skila á netfangið utbod@mulathing.is fyrir klukkan 14:00 þann 6. mars 2024. Jafnframt er hægt að óska eftir frekari upplýsingum á sama netfangi.

Múlaþing áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Vakin er athygli á því að Múlaþing kann að kalla eftir frekari gögnum eftir opnun tilboða ef þörf er á.
Hægt er að fá að skoða eignina og skal hafa samband við skrifstofu Múlaþings á Seyðisfirði með óskir um slíkt.

Hafnargata 40B til sölu, íbúðarhús og bílskúr
Getum við bætt efni þessarar síðu?