Fara í efni

Akstur á göngustígum óheimill

15.02.2024 Fréttir

Sveitarfélaginu hafa borist ábendingar og kvartanir vegna ökutækja á göngustígum og vill beina því til fólks að aka ekki á þeim, enda eru þeir ætlaðir gangandi vegfarendum og er öryggi þeirra stefnt í hættu með akstri á stígunum.

Mörgum göngustígum í Múlaþingi er alla jafna lokað með þar til gerðu hliði. Á veturna eru hliðin höfð opin svo hægt sé að ryðja stígana af snjó og þannig gera gangandi vegfarendum fært að komast leiðar sinnar.

Sveitarfélagið biðlar til fólks að taka tillit til þeirra sem fara ferða sinna fótgangandi með því að halda ökutækjum frá göngustígum og gangstéttum.

Akstur á göngustígum óheimill
Getum við bætt efni þessarar síðu?