Fara í efni

Reglur Múlaþings um gististaði innan sveitarfélagsins

1. grein – Markmið

Reglur þessar taka annars vegar mið af skyldum sveitarfélagsins í málaflokknum miðað við fyrirmæli í lögum nr. 85/2007 og reglugerð nr. 1277/2016 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald. Hins vegar taka reglurnar mið af þeim valdheimildum sem sveitarfélagið hefur til stefnumótunar innan sveitarfélagsins sbr. skipulagslög nr. 123/2010 og öðrum lögum og reglugerðum sem sveitarfélagið varðar.

2. grein – Gistirekstur

Hver sá sem vill hefja gistirekstur í Múlaþingi þarf að gera það í samræmi við gildandi lög og reglur. Í samræmi við 3. gr. reglugerðar nr. 1277/2016 eru fjórir mismunandi flokkar gististaða.

2.1. Gisting í flokki I - Heimagisting

Ekki þarf að sækja um rekstrarleyfi til heimagistingar en hana þarf að skrá hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu. Í 13. gr. reglugerðar nr. 1277/2016 er nánar fjallað um skilyrði sem þarf að uppfylla svo að gistiþjónusta teljist vera heimagisting.

2.2 Gisting í flokkum II-IV - Aðrir gististaðir

Sækja þarf um rekstrarleyfi og leggja fram viðeigandi gögn sbr. 25. gr. reglugerðar nr. 1277/2016.

Jákvæð umsögn sveitarfélagsins er háð því að:

  • Fyrirhugaður rekstur sé í samræmi við aðalskipulag sveitarfélagsins og deiliskipulag viðkomandi lóðar.
  • Fasteignin uppfylla skilmála byggingarreglugerðar.
  • Fasteignin sé skilmerkilega merkt starfseminni utan húss, í samræmi við byggingarreglugerð.
  • Fyrir liggi jákvæð umsögn frá Heilbrigðiseftirliti Austurlands.
  • Fyrir liggi jákvæð umsögn frá Brunavörnum Austurlands.

Gisting á íbúðarsvæðum:

Sveitarfélagið getur veitt jákvæða umsögn fyrir gistingu á íbúðarsvæðum, skv. afmörkun þeirra í gildandi aðalskipulagi, fyrir gistirekstur í flokki II, en ekki flokki III – IV, ef eftirfarandi skilyrði eru uppfyllt:

  • Gisting er á einkaheimili gistisöluaðila og hann skal hafa þar aðsetur.
  • Hámarksfjöldi leigðra herbergja er fimm.
  • Hámarksfjöldi gesta eru tíu einstaklingar.
  • Næg bílastæði þurfa að vera til staðar skv. skilgreiningu í 3. gr. þessara reglna.
  • Á samþykktum teikningum kemur skýrmerkilega fram hvaða hluti húsnæðis tilheyrir gistirekstrinum, en eingöngu er heimilt að selja gistingu í íbúðarherbergjum.

Gisting á verslunar-, þjónustu- og miðsvæðum:

Sveitarfélagið getur veitt jákvæða umsögn fyrir gistingu á verslunar-, þjónustu- og miðsvæðum, skv. afmörkun þeirra í gildandi aðalskipulagi, í flokki II-IV að uppfylltri 3. gr. þessara reglna varðandi bílastæði.

Gisting á frístundabyggðasvæðum:

Á skipulögðu frístundabyggðasvæði er ekki heimiluð gististarfsemi nema gert sé ráð fyrir því í aðalskipulagi sveitarfélagsins og deiliskipulagi frístundabyggðasvæðis. Jákvæð umsögn sveitarfélagsins fyrir gistingu í flokki II-IV er jafnframt háð því að umferð gesta sé ekki líkleg til að valda nágrönnum umtalsverðri truflun og að uppfylltri 3. gr. þessara reglna varðandi bílastæði.

Gisting á landbúnaðarsvæðum og öðrum svæðum:

Á landbúnaðarsvæðum og öðrum svæðum skv. afmörkun í gildandi aðalskipulagi, sem geta heimilað gistingu í flokki II-IV, er gefin jákvæð umsögn að uppfylltri 3. gr. þessara reglna varðandi bílastæði. Jákvæð umsögn er jafnframt háð því að umferð gesta sé ekki líkleg til að valda nágrönnum umtalsverðri truflun.

3. grein – Bílastæði

Við mat á því hvort næg bílastæði séu til staðar vegna fyrirhugaðrar starfsemi skal miða við að eitt bílastæði fylgi hverjum tveimur gistirýmum. Ef bílastæði fylgja ekki viðkomandi eign skal umsækjandi sýna fram á staðfesta heimild frá þinglýstum eigendum aðliggjandi eigna eða frá sveitarfélaginu um nýtingu bílastæða fyrir reksturinn. Að öðrum kosti getur sveitarfélagið í umsögn sinni mælt með því að heimild sé fyrir færri gestum eða gistirýmum en umsókn segir til um.

4. grein - Gjaldheimta

Múlaþing leggur á allar eignir sem nýttar eru til gististarfsemi fasteignagjöld í C- lið 3. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga í réttu hlutfalli við það hlutfall hússins sem nýtt er til sölu gistingar.

5. grein – Afgreiðsla sveitarfélagsins

Heimastjórnir Múlaþings veita umsagnir til sýslumanns samkvæmt framangreindum reglum. Afgreiðsla erinda fer eftir innri verklagsreglum Múlaþings vegna umsagnabeiðna frá sýslumannsembættinu vegna umsókna samkvæmt lögum nr. 85/2007- og reglugerðar nr. 1277/2016 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald.

6. grein – Gildistaka

Reglur þessar taka gildi við staðfestingu byggðaráðs Múlaþings. Samhliða falla úr gildi annars vegar Verklagsreglur Fljótsdalshéraðs vegna umsókna um gistirekstur innan sveitarfélagsins og hins vegar Verklagsreglur vegna umsagna um umsóknir vegna gistingar á Seyðisfirði frá 14.6.2017.

Samþykkt í byggðaráði Múlaþings 23. maí 2023

Síðast uppfært 12. janúar 2024
Getum við bætt efni þessarar síðu?