Fara í efni

Vinnuskóli Múlaþings – Umsóknafrestur til 12. maí

07.05.2024 Fréttir Borgarfjörður Djúpivogur Egilsstaðir Seyðisfjörður

Umsóknafrestur í vinnuskóla Múlaþings rennur út næstkomandi sunnudag og því fer hver að verða síðastur að sækja um. Berist umsókn eftir 12. maí er ekki öruggt að nemandi fái inn í skólann.

Vinnuskóli Múlaþings verður starfræktur frá 10. júní til 15. ágúst í sumar og er hann opinn ungmennum sveitarfélagsins sem eru fædd á árunum 2008 til 2011, eða þeim sem eru að ljúka 7. til 10. bekk í vor. Starfsstöðvar vinnuskólans verða fjórar: á Borgarfirði, Djúpavogi, Egilsstöðum/Fellabæ og Seyðisfirði.

Vinnutími nemenda verða sem hér segir. Nemendur fæddir:

  • 13 ára (árg. 2011) hafa kost á vinnu í 6 vikur, 3 klst. á dag
  • 14 ára (árg. 2010) hafa kost á vinnu í 7 vikur, 3 klst. á dag
  • 15 ára (árg. 2009) hafa kost á vinnu í 10 vikur, 6 klst. á dag
  • 16 ára (árg. 2008) hafa kost á vinnu í 10 vikur, 6 klst. á dag

Laun verða lögð inn á bankareikning sem skal vera skráður á kennitölu nemanda og verða útborgunardagar í mánaðarlok. Forsjáraðilar nemanda sem óska eftir vinnu í Vinnuskólanum er bent á að sækja um fyrir þeirra hönd.

Nemendur fæddir árið 2010 geta skráð sig í Sjávarútvegsskólann.
Nemendur fæddir árin 2008 og 2009 geta óskað eftir að aðstoða við sumarfrístund en hún stendur nemendum 1. – 3. bekkjar til boða og er lögð áhersla á útivist, hreyfingu og gleði. Meðal þess sem gert er í sumarfrístund eru leikir, smíðavöllur, gönguferðir, hjólaferðir, sundferðir og fleira.

Sótt er um í Vinnuskólann í gegnum Mínar síður sem má nálgast hér.
Nánari upplýsingar um Vinnuskólann má nálgast hér.

Vinnuskóli Múlaþings – Umsóknafrestur til 12. maí
Getum við bætt efni þessarar síðu?