Fara í efni

Óskað er eftir efni í Bóndavörðuna

12.03.2024 Fréttir Djúpivogur

Stefnt er að útgáfu Bóndavörðunnar – Hammond vorblaði 24. apríl næstkomandi.

Óskað er eftir efni til birtingar hvort sem um ræðir auglýsingar, greinar eða myndir.

Allt er viðkemur Hammondhátíð, og utandagskrá hennar, á heima í þessu blaði. Einnig er tilvalið að þarna komi fram sumardagskrá og áætlanir, breytingar opnunartíma og annað til upplýsinga fyrir lesendur.

Efni skal berast fyrir þriðjudaginn 2. apríl, í tölvupósti einnig er alltaf velkomið að bjalla með tillögur af efni.

Öllum stendur til boða að verða áskrifandi af Bóndavörðunni en tvö blöð koma út á hverju ári og kostar áskriftin 3.000 krónur fyrir árið.

Ritstjóri blaðsins er Greta Mjöll Samúelsdóttir

Sími: 697-5853

Tölvupóstur: greta@lefever.is

Verð auglýsinga:

Heilsíða - 20.000

Hálfsíða - 14.000

1/3 síða – 8.000

¼ síða – 5.000

Efni þarf að berast í síðasta lagi 2. apríl

Óskað er eftir efni í Bóndavörðuna
Getum við bætt efni þessarar síðu?