Fara í efni

Enn mengun við Strandarveg á Seyðisfirði

29.04.2024 Tilkynningar Seyðisfjörður

Enn mælist mengun í neysluvatni við Strandarveg á Seyðisfirði eftir sýnatöku síðastliðinn föstudag. Notendur í húsum við Strandarveg þurfa því enn að sjóða vatnið. Pípari hefur farið yfir hitakúta á svæðinu en notendum er bent á að hafa samband við HEF veitur ef þeir telja sig þurfa frekari ráðleggingar. Áfram eru notendur hvattir til að láta kalt vatn renna eins og kostur er til að skola úr lögnum. Varðandi heitt neysluvatn þá er notendum bent á að hækka hita á hitakútum upp í 70° C á meðan ástandið varir.

Næsta sýnataka er áætluð á fimmtudag og niðurstöður koma eftir helgina.

Enn mengun við Strandarveg á Seyðisfirði
Getum við bætt efni þessarar síðu?