Fara í efni

Hjálpumst að í umferðinni

05.02.2021 Fréttir

Yfir vetrartímann, þegar er dimmt, gjarnan mikill snjór og hálka, er bráðnauðsynlegt að við hjálpumst öll að í umferðinni. Skyggni er gjarnan slæmt, háir skaflar og veggir hafa myndast víða og aðstæður verða þannig að ekki er alltaf hægt að stöðva ökutæki á augabragði eða bregðast hratt við. Eins eru gangstéttar ekki alltaf ruddar um leið og göturnar, sem kallar á aukinn fjölda gangandi vegfaranda á götunum.

Því er gott fyrir okkur að huga að einu og öðru þegar við ferðumst um götur sveitarfélagsins, ekki síst innanbæjar.

Ef við erum akandi:

  • Ökum varlega og höfum varann á.
  • Virðum allar hraðatakmarkanir, það er alltaf mikilvægt en sérstaklega þegar aðstæður eru ekki góðar.
  • Höfum augun opin fyrir gangandi vegfarendum og börnum að leik.
  • Leggjum bílum í þar til gerð stæði, ekki á gangstéttar og göngustíga.

Ef við erum gangandi eða hjólandi:

  • Notum endurskinsmerki til að vera vel sýnileg.
  • Virðum umferðarreglur.

Foreldrar og forráðafólk minni sín börn á að fylgja umferðarreglum, hafa varann á þegar gengið og hjólað er og vera vel endurskinsmerkt.

Hjálpumst að í umferðinni!

Mynd úr myndasafni.
Mynd úr myndasafni.
Getum við bætt efni þessarar síðu?