|
Fjármálastjóri ber ábyrgð á fjármálum, reikningshaldi og fjárreiðum Fljótsdalshéraðs. Deildin sinnir innra eftirliti, þ.m.t. eftirliti með skatttekjum, eftirliti með framkvæmd fjárhagsáætlunar, umsjón með álagningarstofni fasteignagjalda og álagningu þeirra.
Áhersla er lögð á ráðgjafar- og fræðsluhlutverk deildarinnar og skilvirka upplýsingamiðlun til viðskiptavina. Unnar eru greiningar og álitsgerðir fyrir kjörna fulltrúa og eftir atvikum fyrir sveitarfélagið um fjárhagsleg málefni. Sérstök áhersla er lögð á rafræna stjórnsýslu og greiðslumiðlun.
Helstu verkefni fjármáladeildar eru:
- Gjaldskrár
- Innheimta
- Greiðsla reikninga
- Fasteignagjöld
- Bókhald - ársreikningar
- Fjárhagsáætlun ársins
- 3ja ára áætlun
Ársreikningar og ársskýrslur
Ársreikningur Fljótsdalshéraðs er gerður samkvæmt lögum og reglum um uppgjör sveitarfélaga og er birtur samandreginn á heimasíðu sveitarfélagsins. Endurskoðendur ársreikninga Fljótsdalshéraðs eru KPMG Endurskoðun hf. Umsjón með uppgjöri og útgáfu ársreiknings hafa aðalbókari og fjármálastjóri.
Ársreikningur Fljótsdalshéraðs 2004
Ársreikningar Fljótsdalshéraðs 2005
Ársreikningar Fljótsdalshéraðs 2006
Ársreikningur Fljótsdalshéraðs 2007
Ársreikningur Fljótsdalshéraðs 2008
Ársreikningur Fljótsdalshéraðs 2009
Ársreikningur Fljótsdalshéraðs 2010
Ársreikningur Fljótsdalshéraðs 2011
Ársreikningur Fljótsdalshéraðs 2012
Ársskýrsla 2007
Fjárhagsáætlun ársins
Fjárhagsáætlun ársins er meginstjórntæki við fjármálalega umsýslu sveitarfélagsins innan ársins þar sem birtist á tölulegu formi allar ákvarðanir um rekstur og fjárfestingar fyrir einstaka málaflokka og deildir. Fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs er svonefnd rammaáætlun þar sem viðkomandi stjórnandi hefur valfrelsi um rekstur deildar sinnar innan þess fjárhagsramma sem ákveðinn var fyrir deildina. Fjárhagsáætlunin er afgreidd með tveimur umræðum í bæjarstjórn venjulega í nóvember - desember fyrir næsta rekstrarár og er birt samandregin á heimasíðu Fljótsdalshéraðs. Umsjón með útgáfu og framkvæmd fjárhagsáætlunar hefur fjármálastjóri.
Fjárhagsáætlun 2007 Fjárhagsáætlun 2008 Fjárhagsáætlun 2009 Greinargerð með fjárhagsáætlun 2010 Fjárhagsáætlun 2010 Fjárhagsáætlun 2010. Endurskoðun 3. febrúar 2010 Kynningarglærur. Fjárhagsáætlun 2010. Endurskoðun 3. febrúar 2010 Fjárhagsáætlun 2011 Kynningarglærur. Fjárhagsáætlun 2011 Fjárhagsáætlun 2012 - 2015 Fjárhgsáætlun 2013 og 2015-2016
3ja ára áætlun
3ja ára áætlun er megin langtímastjórntæki við fjármálalega umsýslu sveitarfélagsins. Þar birtist á tölulegu formi ákvarðanir um fjárfestingar fyrir einstaka málaflokka og deildir til næstu þriggja ára á eftir yfirstandandi fjárhagsári. 3ja ára áætlunin er afgreidd með tveimur umræðum í bæjarstjórn oftast í janúar - febrúar ár hvert og er birt samandregin á heimasíðu Fljótsdalshéraðs. Umsjón með útgáfu og framkvæmd 3ja ára áætlunar hefur fjármálastjóri.
Áætlun fyrir 2008-2010 Áætlun fyrir 2009-2011 Áætlun fyrir 2010-2012 Áætlun fyrir 2011-2013 Áætlun fyrir 2012-2014
Aðrar fjárhagslegar upplýsingar
Skuldabréf útgefin af Fljótsdalshérðaði færð á Athugunarlista; sjá meðfylgjandi markaðstilkynningu. https://newsclient.omxgroup.com/cdsPublic/viewDisclosure.action?disclosureId=497434&lang=is
07.11.2012 Fréttatilkynning: Fjárhagsáætlun 2013-2016
21. mars 2011. Fréttatilkynnning vegna ársreiknings fyrir árið 2011
Áætlun um birtingu ársreiknings 2011
4. maí 2011. Fréttatilkynnning vegna ársreiknings fyrir árið 2010
1. desember 2010. Fréttatilkynning, Fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs 2011
21.apríl 2010 Fréttatilkynnning vegna ársreiknings fyrir árið 2009
21.apríl 2010 Áætlun um birtingu á ársreikningi 2009
30.júní 2009 Skuldabréf (FDH 09 1) tekin til viðskipta
20.maí 2009 Fréttatilkynning vegna ársreiknings fyrir árið 2008
20.maí 2009 Birting á ársreikningi 2008
10.mars 2008 Briting á ársreikningi 2007
19.mars 2008 Fréttatilkynning vegna ársreiknings fyrir árið 2007
30.júní 2007 Sundurliðanir 30. júní 2007
26.júlí 2007 6 mánaða rekstrar- og efnahagsyfirlit 2007
26.júlí 2007 Árshlutareikningur - 6. mán.
22.mars 2007 Fréttatilkynning vegna ársreiknings fyrir árið 2006
6.sept. 2005 Lykiltölur 2004
Innkaupastefna og innkaupareglur
Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs samþykkti í lok 2008 innkaupastefnu og innkaupareglur fyrir sveitarfélagið, í samræmi við lög um opinber innkaup nr. 84/2007.
Í innkaupareglunum eru skilgreindar leiðir til að vinna innkaupastefnunni framgang, m.a. með því að stjórnsýsla við innkaup sé vönduð, jafnræðis seljenda sé gætt og stuðlað sé að virkri samkeppni. Leitast er við að gera innkaupin enn markvissari, innkaup stofnana og fyrirtækja sveitarfélagsins eru samræmd eftir föngum og áður en innkaup eru gerð er þörfin vandlega yfirfarin út frá sjónarmiðum viðkomandi notenda. Við innkaup er tekið tillit til verðs, gæða, umhverfisáhrifa og líftímakostnaðar. Leitast verður við að eiga góð samskipti við birgja, ekki síst í því skyni að finna nýjar lausnir sem geta leyst betur þarfir sveitarfélagsins á hagkvæman hátt. Lögð er áhersla á innkaupafræðslu og þekkingu starfsfólks.
Hér má finna innkaupastefnu og innkaupareglur Fljótsdalshéraðs
|