Skip to content

Fljótsdalshérað

dot
sh-bg-07.jpg
Bæklingar Print E-mail

Hér má finna ýmsa bæklingar og upplýsingarit sem gefin hafa verið út af sveitarfélaginu.

Vaxandi hérað. Bæklingur á íslensku og ensku fyrir ferðamenn. Stuttur texti, myndir og kort af sveitarfélaginu. Gefinn út 2005.

Perlur Fljótsdalshéraðs. Gönguleiðabæklingur, gefinn úr í samstarfi við Ferðafélag Fljótsdalshérað. Um er að ræða annars vegar léttar leiðir og hins vegar þyngri og lengri. Á hverjum áfangastað er hólkur sem inniheldur upplýsingar um staðinn, gestabók og stimpill.

Heiðarbýlin í göngufæri. Gönguleiðabæklingur sem Ferðafélag Fljótsdalshéraðs, sveitarfélagið Fljótsdalshérað og Kaupvangur menningar- og fræðasetur Vopnfirðinga hafa sameinast um að gefa út. Bæklingurinn grundvallast á verkefni um að byggja upp menningartengda ferðaþjónustu á Jökuldalsheiðinni og heiðunum þar í kring. Heiðarbýlin verða tengd með gönguleiðum. Hjá hverju býli verður hólkur sem inniheldur upplýsingar um býlið, ábúendur og sögur tengdar því, gestabók og stimpil. Kort til að safna stimplum verður til sölu í Sænautaseli og á Upplýsingamiðstöðvum á Egilsstöðum og Vopnafirði.

Þá hafa verið gerð tvö kynningarmyndbönd og sett á YouTube: Annað er þriggja mínútna video sem nefnist Fljótsdalshérað in summer and winter en hitt myndbandið er frá Atvinnulífssýningunni sem haldin var á Egilsstöðum í ágúst 2012.

 
facebook
Banner
Íbúagátt Fljótsdalshéraðs