Skip to content

Fljótsdalshérað

dot
sh-bg-12.jpg
Veiði Print E-mail

Skotveiði

Löng hefð er fyrir skotveiði á Fljótsdalshéraði enda einstakar veiðilendur í sveitarfélaginu.  Fjölbreytt veiðibráð er til staðar og ber þá fyrst að nefna að rúmlega helmingur íslenska hreindýrastofnsins hefur kjörlendur sínar innan sveitarfélagsins.  Leiðsögumenn með hreindýraveiðum eru starfandi í sveitarfélaginu og hafa þeir stofnað með sér samtök.  Allar upplýsingar um hreindýraveiði og leiðsögumenn með hreindýraveiðum er að finna hjá Umhverfisstofnun
Vilji menn láta stoppa upp veiðibráð sína eða láta súta skinnin er sá möguleiki einnig fyrir hendi.  Hamskerinn Reimar Ásgeirsson hefur á seinni árum getið sér gott orð fyrir þá iðju.
Önnur veiðibráð er t.d. önd, gæs, rjúpa og selur.
Rétt er að benda á að flestar veiðilendurnar eru í einkaeign og nauðsynlegt er að biðja landeigendur um leyfi ætli þeir sér að veiða.
Starfandi er Skotveiðifélag Fljótsdalshéraðs en formaður er Jón Egill Sveinsson, sími 660 6223


Stang- og fluguveiði

Mikið er um skemmtilegar veiðiár og vötn á Fljótdalshéraði.  Nánari upplýsingar um veiðileyfi er á Upplýsingarmiðstöð Austurlands.

Veiðifélag Selfljóts

Jökla og Fögruhlíðará

 

 
facebook
Banner
Íbúagátt Fljótsdalshéraðs