Skip to content

Fljótsdalshérað

dot
sh-bg-08.jpg
Áhugaverðir staðir Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Brot af athyglisverðum stöðum á Fljótsdalshéraði. 
Hvetjum við gesti jafnt sem heimamenn til að heimsækja eftirtalda staði.
 
Eiðastaður: Var áður höfuðból og kirkjusetur. Stofnaður var fyrst bændaskóli 1883. Varð Héraðsskóli 1918. Í dag er staðurinn í einkaeign og er unnið að uppbyggingu alþjóðslegs mennta og menningarseturs.  Margar skemmtilegar gönguleiðir gegnum kjarrivaxna ása.

Hjaltastaður: Kirkjustaður í Hjaltastaðaþinghá og var prestsetur til 1919. Á Hjaltastað er frægust sagan af Hjaltastaðafjandanum en hann áreitti fólk og gerði því lífið leitt. Skammt frá Hjaltastað er félagsheimilið Hjaltalundur. 
grimstorfaGrímstorfa: Skógi vaxin hjalli sem illfært er að komast að. En hjallinn er austan í Hafrafelli sem er 216m á hæð og er í Fellum. Sagan segir að Grímur Droplaugarsonar hafi falið sig í hjallanum um tíma.

Gönguferð á Landsenda: Ekið er út Jökulsárhlíð að Biskupshól við rætur Hellisheiðar eystri. Þaðan er gengið að eyðibýlinu Landsenda. Áfram er haldið að Kerinu en þar var vörum oft skipað í land ef gaf á sjó hér áður fyrr. Hægt er að komast út að Landsendahorni. Þar framundan eru miklar líparítskriður í Móvíkum. 

Múlakollur:  508 m móbergsfjall, en hann klífur Skriðdal í tvo dali. Gengið er frá bænum Þingmúla. Gott útsýni yfir Skriðdal. 1.5 klst gönguferð. Þarna hafa fundist steingervingar. Einnig er hægt að ganga frá Múlastekk gegnum Gunnarsskarð og áfram út á Múlakoll.  hjalpleysa

Hjálpleysa: Gönguferð nokkuð erfið. Þetta er skarð eða þverdalur sem liggur milli Héraðs og Reyðarfjarðar. Þar er Valtýshellir sem getir er um í sögunni um Valtý á grænni treyju.

Höttur: Líparítfjall um 1106m við Hjálpleysu. Talið er að hann hafi áður heitið Hátúnshöttur.

Hrafnafell: Fjall sem stendur í Fellum. Ekið er Fjallselsveg upp á hæsta ás við Hafrafell En þar eru fjarskiptamöstur. Hægt er að ganga út Hrafnafellið sunnan Grímstorfu. Þarna ber við augu jökulsorfnar klappir. Hrafnafellsrétt er grjóthlaðin rétt sunnan vegar.

Þinghöfði: Farið er veg 925 út Hróarstungu. Þetta er gamall þingstaður við Krakalæk og nefndist kjarvalshvammurKrakalækjarþing. Þessi staður er friðlýstur en það er upplýsingaskilti við veginn.

Kjarvalshvammur: Hvammur sem stendur stutt frá Ketilsstöðum í Hjaltastaðaþinghá.Kjarval dvaldi í þessum hvammi í tjaldi í tvö ár í kringum 1948. En bóndinn gaf honum skikann og byggði kofann. Þarna dvaldi Kjarval oft og málaði margar frægar af frægustu myndum sínum. Þetta er eina fasteignin sem Kjarval átti. Þarna er líka  bátaskýli fyrir bát sem Kjarval á að hafa siglt niður Selfljót til sjávar.

Gálgaás: Það er klettur rétt austan við Egilsstaðakirkju. Gengur hann undir nafninu Gálgaklettur. Frægur er staðurinn fyrir það að Valtýr á grænni treyju sem var bóndi á Eyjólfsstöðum á Völlum var tekinn af lífi fyrir morð og þjófnað á vinnumanni. En hann neitaði alltaf sök. Fjórtán árum seinna fannst rétti morðinginn sem einnig hét Valtýr og var hengdur. Bein þeirra beggja lágu undir klettinum en síðar var reistur skjöldur sem stendur enn.

Vallanes: Þetta er kirkjustaður. Frægasti prestur sem þar þjónaði var Stefán Ólafsson á 17. öld. Félagsheimilið Iðavellir stendur í landi  Vallaness. Í dag er stunduð lífræn ræktun og framleiðsla á  snyrtivörunum undir nafninu Móðir jörð. klaustursel

Klaustursel: Bærinn er á efra Jökuldal. Þar er vísir að dýragarði. Hreindýr, refir, gæsir, álftir og fleiri íslensk dýr. Þarna er einnig gallerí þar sem er að finna ýmsar vörur m.a. unnar úr hreindýraleðri. Brúin sem liggur heim að bænum yfir Jökulsá er elsta brú landsins sem enn er í notkun.

Aðalból: Það er bær efst í Hrafnkelsdal og er bær Hrafnkels Freysgoða. Þar má sjá haug Hrafnkells. Í nágrenni hafa fundist fornir gripir sem hafa styrkt sannleiksgildi þessarar sögu. Á Aðalbóli er rekin ferðamannaþjónusta í dag.

Krosshöfði  í Stapavík: Frá Unaósi sem er ysti bær í Hjaltastaðaþinghá er létt ganga í fallegri náttúru út með Selfljóti. Þar er Stapavík en það er lítil klettavík. Þar vestan við er Krosshöfði við ósa fljótsins. Hann gegndi mjög merkilegu hlutverki í byrjun 20. aldar sem verslunarstaður fyrir úthéraðsmenn. Í Stapavík var vörum skipað upp fram á fimmta tug aldar. Þetta lagðist af þegar vegur var minnisvardi_sigfuslagður yfir Vatnsskarð.

Minnismerki Sigfúsar Sigfússonar: Á Eyvindará fæddist Sigfús Sigfússon sagnfræðingur og þjóðsagnasafnari. Í landi Eyvindarár á Fljótsdalshéraði hefur honum verið reistur minnisvarði. 
Skessukatlar í Bjarglandsá: Bjarglandsá er í landi Sandbrekku í Hjaltastaðaþinghár. Áin er töluvert vatnsfall og í klettagljúfri á um fjögra km kafla. Skessukatlarnir eru náttúruundur sem finnast í Bjarglandsá.

Skessugarður: Þetta er forn jökulruðningur vestan Sænautafells. Þetta er mjög merkilegt náttúrufyrirbæri. Garðurinn er um 300 m langur og hæstur c.a. 5 m. Ekið er eftir gamla hringvegi 1 að Sænautaseli. Gönguleið frá Sanautaseli vestur að Skessugarði. Síðan umhverfis Grjótgarðsvatn og til baka.

Taglarétt: Gengið frá bílastæði við Eyvindarárbrú. Gömul skilarétt sem stendur í skógivöxnu umhverfi við Eyvindará. Þetta er um 3ja klst ganga.

Atlavík: Frægur áningastaður ferðamanna. Þar er tjaldstæði, bátaleiga og hægt er að taka Lagarfljótsorminn þ.e. ferjuna þar og sigla á fljótinu á sumrin.

Nielsenshús: Var fyrsta íbúðarhúsið sem reist var þar sem nú er Egilsstaðabær. Það var byggt 1944 af hinum danska Oswald Nielsen. Búið er að endurgera húsið og í dag er rekið glæsilegt kaffihús.storurd

Stórurð: Ein af mestu náttúruperlum Austanlands. Hún er vestan Dyrfjalla og er einstök upplifun. Grjótruðningur, sléttir balar og fallegar tjarnir. Vinsæl gönguleið fyrir ferðamenn. Best er að ganga af Vatnsskarði og til baka neðri leið. Gangan inneftir tekur 2.5 klst.

Miðhús: Bær við Eyvindará í grennd við Egilsstaðabæ. Árið 1980 fannst þar silfursjóður sá stærsti sem fundist hefur. Hann er nú í vörslu Þjóðminjasafns. Á Miðhúsum er Listiðjan Eik en þar er að finna til dæmis fallegt handverk unnið úr íslenskri náttúru.
 
Eyjólfsstaðaskógur: Skógurinn er skemmtilegur til gönguferða. Hann er að stórum hluta í eigu Skógræktarfélags Austurlands en það hefur staðið fyrir plöntun trjáa undanfarin ár. Þar er að finna stikaðar gönguleiðir og fossa. Ef ekið er inn á Velli og inn að Einarsstöðum þá liggur leiðin í gegnum sumarhúsabyggðina. Þetta er skemmtileg afþreying fyrir fjölskylduna í hlýlegu og notalegu umhverfi.

Grímsárvirkjun: Grímsárvirkjun er í Skriðdal var gangsett til rafmagnsframleiðslu 15. júní 1958 og lauk saenautaselframkvæmdum í nóvemberlok sama ár.

Sænautasel: Það er eyðibýli á Jökuldalsheiði. Þar var búið í 100 ár frá 1843-1943. Á árunum 1992-1993 var torfbærinn endurreistur og hafður til sýnis fyrir ferðamenn. Umsjónarmenn eru tilbúnir að leiðsegja fólki um bæinn og einnig er möguleiki á hressingu. 

Þingmúlakirkja: Þingmúlakirkja er í Vallanesprestakalli í Múlaprófastsdæmi. Hún var byggð 1886. Yfirsmiður var Niels Jónsson í Sauðhaga á Völlum.  Hún var upphaflega klædd með járni að utan. Árið 1980 var gert vel við hana og hún færð til upprunalegs horfs, járnlaus.

Útsýnisskífa af Fjarðarheiði: Fjarðarheiðin er 620m há og liggur á milli Héraðs og Seyðisfjarðar. Hægt er að fara út á hringsjána á Norðurbrún. Einnig er hægt að aka upp á Gagnheiði og þaðan er mjög víðsýnt.  Á Gagnheiði er sjónvarpsendurvarpsstöð. fardagafoss

Fardagafoss: Góð gönguleið u.þ. bil 5km frá Egilsstaðabæ. Fossinn er við rætur Fjarðarheiðar. Frá Seyðisfjarðavegi er bílastæði og þaðan er gengið upp að í c.a. 30mín. Stórkostleg fegurð að sjá bæði meðfram gilinu og yfir Fljótsdalshérað. Undir fossinum er skúti þar sem ferðalangurinn getur óskað sér og skrifað í gestabók.

Hallormsstaðaskógur: Skógurinn er sá stærsti á landinu. Hann liggur meðfram Leginum. Byrjað var árið 1903 með tilraunir á trjáplöntum. Elsti lerkilundurinn er frá 1938 og er kenndur við Guttorm Pálsson skógarvörð og heitir lundurinn Guttormslundur. Bæði er hægt að tína ber og fara í sveppatínslu þarna á haustin. Á Hallormsstað var stofnaður Húsmæðraskóli árið 1930. Hann starfar enn í dag og heitir núna Hússtjórnarskólinn á Hallormsstað. Áður fyrr sóttu þangað trjasafn_hallormsstadaðeins konur en nú geta bæði kynin sótt um skólavist.

Trjásafnið á Hallormsstað: Það er trjásafn sem staðsett er í Mörkinni á Hallormsstað. Þetta er mjög fjölskylduvænt safn og þarna er hægt að skoða um 70 tegundir trjáa. Gönguferðir eru vinsælar og merktar. Einnig er hægt að fá greinargott kort hjá Skógrækt ríkisins. 

Þórisárkumlið: Árið 1995 fannst kuml í landi Eyrarteigs í Skriðdal. Það var um 40 metrum frá bökkum Þórisár að sunnanverðu og rúma 150 metra frá þjóðvegi 1. Var það varðveitt til að byrja með á Minjasafni Austurlands en var síðan flutt á Þjóðminjasafnið í Reykjavík. Talið er að maðurinn hafi verið 35 ára þegar hann dó og um 1.69 cm á hæð. hellisheidi 

Útsýni af Hellisheiði: Hellisheiði er 655 m hár fjallvegur milli Jökulsárhlíðar og Vopnafjarðar. Vegurinn er frekar krókóttur en fær öllum bílum. Stórkostlegt útsýni er yfir Héraðsflóann og  yfir á Vatnskarð. Einnig blasir Bjarnarey við.

Húsey: Það er bær í Hróarstungu milli fljóta við Héraðsflóann. Þar er rekin ferðaþjónusta og hægt er að komast í návígi við einstakt fuglalíf. Hægt er að fá að fara á hestbak og skoða seli með leyfi hjónanna þar.

Kirkjubær: Þetta er kirkjustaður og var til skamms tíma prestssetur. Þarna er  einstaklega falleg og gömul kirkja frá 1851.

Geirsstaðir: Lítil torfkirkja er risin að Geirsstöðum í landi Litla-Bakka í Hróarstungu en kirkjan er eftirgerð bændakirkju sem stóð þar fyrir um 1000 árum.

Lagarfossvirkjun: Lagarfoss var virkjaður 4. mars 1975 og  hófst þá orkuframleiðsla. Formleg afhending fór utsynisskifafram 25. september 1975. Nú stendur yfir stækkun   

Útsýnisskífa á Kaupfélagshömrum: Gengið upp Fénaðarklöpp frá miðbæ Egilsstaða upp á Hamra ofan Sláturhúss. Þaðan er mjög gott útsýni yfir Fljótsdalshérað.

Galtastaðir Fram: Í Hróarstungu á Fljótsdalshéraði standa Galtastöðum Fram sem er lítill torfbær frá 19. öld af svokallaðri Galtastaðagerð. Hér er um dæmigerðan alþýðubæ að ræða þar sem fjósið var undir baðstofunni. Bærinn er í vörslu Þjóðminjasafns Íslands frá 1976. Ferðamönnum er heimilt að skoða bæinn.

Kárahnjúkastífa og Hálslón: Kárahnjúkar eru móbergshnjúkar austan við Jökulsá á Brú. Jökulsáin fellur í miklu gljúfri, Hafrahvammagljúfri sem er eitt dýpsta og hrikalegasta gljúfur landsins. Nú er stíflan að verða tilbúin og byrjað er að fylla Hálslónið. Þessi virkjun er umdeild en hún á að sjá fyrirhuguðu álveri fyrir orku. Margur ferðamaðurinn hefur lagt leið sína upp að Kárahnjúkum og til þess að taka þátt í þjóðarumræðunni. Þetta verður í framtíðinni mesta mannvirki á Íslandi. selskogur_2

Útivistarsvæðið í Selskógi: Útivistarsvæði í landi Egilsstaðabæjar. Þetta er birkiskógur með einu og einu reinitré á stangli. Víða vaxa ber og margskonar gróður. Hægt er að fara stutt frá Eyvindarárbrú og þaðan liggja göngustígar mislangir. Sá lengsti er 3.2km. Hjá Vémörk sem er gamall samkomustaður eru leiktæki fyrir börnin. Þetta er einnig upplagt útivistarsvæði á vetrum.  

Laugavalladalur: Það er afskekktur dalur inn á öræfum skammt frá Kárahnjúkum. Þar átti sér stað mikill harmleikur í byrjun 20. aldar. Þar er heitur lækur sem ferðamenn heimsækja og baða sig. Nokkru neðar er foss þar sem menn skola af sér í litlum fossi. Það er vinsælt að koma þarna og baða sig í ósnortinni náttúrunni.

Möðrudalur: Möðrudalur liggur hæst allra bæja á Íslandi en hann er í 469 m hæð yfir sjó. Þar er mjög merkileg lítil kirkja sem Jón Stefánsson bóndi í Möðrudal reisti árið 1949. Stikaðar gönguleiðir eru á nokkrum stöðum og þar er rekin mjög öflug ferðaþjónusta í dag. Víðsýnt er og falleg náttúra allt um kring. Mætti þar nefna fjallið Herðubreið.    

terribjargÞerrisbjarg: Út-Héraðsmenn kalla bjargið Þerrisbjarg og segja að það sé þurrkur þá daga sem sól skín á Þerribjargið að morgni. Skaginn utan Fagradals í Vopnafirði og Hellisár hjá Ketilsstöðum hefur verið á náttúruminja-skrá síðan 1984. Langisandur undir Þerribjargi er um það bil ½ km langur. Utan við sandinn er berggangur sem nefnist Bjarglöng en að sunnan er Múlahöfn. Múlahöfn þótti fyrrum álitlegust höfn við Héraðsflóa. 

Hengifoss: Hengifoss er 128 m hár og annar hæsti foss landsins. Vatnsmagn hans er hins vegar fremur lítið. Hengifossá á upptök sín í Hengifossár-vatni uppi á Fljótsdalsheiði og fellur í innanvert Lagarfljót. Neðan við Hengifoss og skammt fyrir ofan bæinn Hjarðarból er annar foss í ánni sem heitir Litlanesfoss. Í fossbrúninni eru nokkur blágrýtislög en milli þeirra röndótt millilög, sum fagurrauð. Stuðlabergsmyndanir prýða umhverfi hans og gera hann að einum af fegurstu fossum landsins. Þar er hægt að finna steinrunna stofna kulvísra barrtrjáa og surtarbrand, sem vísar til hlýrra loftslags á seinni hluta tertíer tímabilsins.

 

 

 

 

Nánri upplýsingar um hvern staða er hægt að fá á:
Upplýsingamiðstöð Austurlands
Kaupvangi 2-4, 700 Egilsstöðum
Heimasíða: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Vefsíða: east.is

 

 

 

 

 
Borði
Íbúagátt Fljótsdalshéraðs