Skip to content

Fljótsdalshérað

dot
sh-bg-02.jpg
Almennur fróðleikur Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Hér er að finna dæmi um bækur, ljóð, skáld og fleira sem tenjast á einhvern hátt  Fljótsdalshéraði. 
Af mörgu er að taka en fleira má finna á Bókasafni Héraðsbúa, Laufskógum 1.
Sími: 471-1546

Landnám

Austurland, Safn austfirskra fræða 2. bls.37-58.
Landnáma.
Hrafnkels saga Freysgoða  
Fljótsdæla saga
Austfirðingar eftir Pál Vigfússon á Hallormsstað…..Austurland, safn austfirskra fræða 2, bls.73-76…….Þar segir m.a: ”Landnámsmenn í Austfirðingafjórðungi voru að upplagi spaklyndir og friðsamir og hver höfðingjaættin tengdist annari. Þeir voru því ríkir á þingi og í landsmálum, en mildir og friðsamir í héraði. Bændur vöndust á, að hugsa um sinn hag, stunda búsýslu og önnur friðsamleg störf; en við það óx þeim svo fiskur um hrygg, að þeir urðu nokkuð sjálfstæðari og óleiðitamari höfðingjum; en velgengni, jafnræði og menning alþýðu hafði í för með sér, að þjóðlífið fékk á sig lýðveldislegan blæ. En af því leiddi, að ríki og metorð bundust síður við ættir og auð en atgjörvi og mannkosti.”

Þjóðsögur og ævintýri

Sakamenn 
Í Grímstorfu og Gunnarsklauf í Fellum. (Sigf.Sigf.6.bl.38-40)
Huldufólk
Í þriðja bindi af Þjóðsögum Sigf. Sigf.er að finna sagnir af álfum:
Huldufólkið í Egilsstaðaklettum (bl.174)
Huldufólk í Hrafnkelsdal (bl.52.)
Huldufólk hjá Beinárgerði (bl.10)
Söngsteinninn á Ásklifi í Fellum (bl.167)
Pilturinn í Álfasteininum að Hofi í Fellum (bl.177)
Fardagafoss
Sagt er að undir honum búi skessa (Sigf. Sigf. 3, bl.180) 
og því hefur  Fjalla Eyvindur trúlega búið þar með henni á sínum tíma (Sigf. Sigf. 7, bl. 11-12)
Tröllin í Hróarstungu
Ófreskju í Hrafnkelsdal og
Orminn í Lagarfljóti, í bók Jóns R. Hjálmarssonar, Skessur, skrímsni og furðudýr við þjóðveginn
Þjóðsögur
Um Lagarfljótsormurinn, Þjóðsögum Sigfúsar Sigfússonar
Valtý á grænni treyju, Þjóðsögum Sigfúsar Sigfússonar
Graut Atla, Þjóðsögum Sigfúsar Sigfússonar.
Gunnar á Fossvöllum sagði sögur.
M.a. söguna um kaskeitið:
     Einu sinni var Gunnar á ferð á meri milli bæja og ríður fram hjá hestastóði. Í stóðinu var graðfoli og Gunnar veit ekki fyrr til en að folinn er kominn upp á merina fyrir aftan hann.Gunnar var með þetta fína kaskeiti á höfðinu og tekur það af sér til að dangla því í hausinn á folanum svo að hann fari ofan. Við þetta misssir hann kaskeitið og finnur það hvergi nokkurs staðar. En um vorið þegar hryssan kastar fæðist folaldið með kaskeitið á höfðinu.
            Fleiri sögur Gunnars í svipuðum dúr er að finna í bókinni, Lyginni líkast, sem Jón Hjaltason tók saman

 Sveitir, bæir og kirkjur

Jökuldalsheiðin og byggðin þar eftir Halldór Stefánsson, Austurland, safn austfirskra fræða 1, bls. 150.
Fellamannabók …útg. 1991
Þar er m.a. að finna: Ábúendatal Fellahrepps 1700-1990
                                  Sögu Búnaðarfélagsins
                                  Skólasögu
                                  Þátt um…. Göngur og réttir
                                     “         ….Refaveiðar og grenjaleitir
                                   Minningaþætti
                                   Manntöl o.fl.
Um nafngiftina Egilsstaðir…..og aðrar hugmyndir um heiti á þorpinu er að finna í tímaritinu Glettingi t.d. Gálgaás-Kaupvangur í júlí 1947  Egilsstaðabær-Lagarbær-Lagarborg  (2tbl.1948) Enn um Kaupvang (5.tbl. 1948) Egilsstaðir skal byggðin heita og  Tillaga um nafn (8.tbl.1948) Nafn á nafn ofan (11.tbl.1948).
Egilsstaðabók –frá býli til bæjar….útg.1997.
Þar er að finna kafla um: Landslag og staðhætti
                                         Aðdraganda þéttbýlis í landi Egilsstaða á Völlum
                                         Bifreiðin í sögu Egilsstaða
                                         Stofnun Egilsstaðahrepps 1947
                                         Sveitarstjórnir á Egilsstöðum
                                         Stofnanir og starfsemi Egilsstaðahrepps
                                         Barnafræðsla á Egilsstöðum í hálfa öld
                                         Garðbærinn Egilsstaðir
                                         Landbúnaður í Egilsstaðahreppi
                                         K H B og Egilsstaðir
                                         Gistihúsið á Egilsstöðum
                                         Flugið í sögu Egilsstaða
                                         Atvinna og fyrirtæki
                                         Stofnanir ríkisins á Egilsstöðum
                                         Samkomuhald á Egilsstöðum
                                         Valaskjálf
                                         Egilsstaðasöfnuður og kirkja
                                         Félög og klúbbar á Egilsstöðum
                                         Ár og dagar í lífi Egilsstaða. 
Þættir úr sögu Möðrudals á Efra-Fjalli
eftir Halldór Stefánsson  .
Hrafnkelsdalur og byggðin þar
eftir Halldór Stefánsson…….Austurland, safn austfirskra fræða,2, bls.143. 
Þeir breyttu Íslandssögunni á einu vori
þáttur um fannalög og flutninga eftir Vilhjálm Hjálmarsson .
 Sveitir og jarðir í Múlaþingi

Kirkjustaðir

Um kirkjurnar Hofteig, Eiríksstaði, Ás í Fellum, Hjaltastað, Eiða og Þingmúla
Má lesa í Sýslu og sóknarlýsingum Múlasýslna.
Möðrudal  og Vallarnes, Forn frægðarsetur 1.
Kirkjubæ, Forn frægðarsetur 3.

Skáld og ljóð

Skáld
Hér má nefna meðal annars Páll Ólafsson, Einar Hjörleifsson Kvaran, Jóhann Magnús Bjarnason, Stefán Ólafsson og Bjarni Gissurarson.
 
Horft yfir Hérað.
Hvort hefur þú af Heiðarbrún
um Hérað skyggnst, er grænka tún,
er fjöllin blika blá við sól
og birkið skrýðist grænum kjól?
Hvort sástu þarna bláhvítt band
frá brjóstum falla út á sand
um gróna bakka, grænkuð sund,
í geisladýrð um morgumstund.……Upphaf ljóðs eftir Jóhannes Arngrímsson.
 
Ljóð
Hallormsstaðaskóg orti Laxness, 
Hrísluna og lækinn, Páll Ólafsson
Vorkvöld í Hallormsstaðaskógi, Knútur Þorsteinsson.
Selskógur, Jónbjörg Eyjólfsdóttir 
Í Hallormsstaðaskógi, Kristján frá Djúpalæk. 

Allar fyrrnefndar bækur og tímarit er að finna á Bókasafni Héraðsbúa. 

 
Borði
Íbúagátt Fljótsdalshéraðs