
| Sí- og endurmenntun |
|
|
|
Reglur um sí- og endurmenntun starfsmanna Fljótsdalshéraðs voru samþykktar í bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs 3. janúar 2007, ásamt úthlutunarreglum Endurmenntunarsjóðs. Reglurnar voru settar með hliðsjón af starfsmannastefnu sveitarfélagsins og með tilvísun í kjarasamninga. Þar er fjallað um rétt starfsmanna til að hafa tækifæri til að viðhalda og efla þekkingu sína og jafnframt um að starfsmönnum er skylt að taka þátt í þeirri símenntun sem símenntunaráætlun þeirra gerir ráð fyrir. Símenntunarálag er kjarasamningsbundin greiðsla sem starfsmenn fá, en sinni þeir ekki símenntun skv. áætlun, getur komið til skerðingar á þessum greiðslum, samanber ákvæði í kjarasamningum. Hér má sjá reglur um sí- og endurmenntun starfsmanna Fljótsdalshéraðs Hér er hægt að nálgast umsóknareyðublað í Endurmenntunarsjóð Fljótsdalshéraðs
|