Skip to content

Fljótsdalshérað

dot
sh-bg-10.jpg
Félagsheimili Print E-mail

Félagsheimili voru oft burðarásar menningarstarfs í dreifðum byggðum landsins. Á Fljótsdalshéraði hefur verið lögð áhersla á að standa vörð um starfsemi þeirra og rekstur, þrátt fyrir bættar samgöngur og annað sem hefur breytt hlutverki þeirra nokkuð.

Á Fljótsdalshéraði eru þrjú félagsheimili starfrækt í eigu sveitarfélagsins. En það eru Iðavellir á Völlum, Arnhólsstaðir  í Skriðdal og Hjaltalundur í Hjaltastaðaþinghá. Tungubúð í Hróarstungu er í eigu Kirkjubæjarkirkju og þriggja félaga í sveitinni í kring. Haldin eru árleg þorrablót, jólaböll fyrir börn í sveitunum auk þess sem húsnæðið er notað fyrir fjölskyldusamkomur af ýmsu tagi. Ferðaþjónusta, ýmis konar fundir og námskeið hafa verið vaxandi þáttur í rekstri félagsheimilanna. Til dæmis er talsvert um að ættarmót og aðrir hópar leggi undir sig félagsheimilin um helgar á sumrin. Iðavellir eru að fá nýtt hlutverk, því reiðhöll er að rísa við húsið og verður hún tengd félagsheimilinu með tengibyggingu.

idavellir 

Iðavellir
Umsjónarmaður er Þorkell Sigurbjörnsson, sími 899 9028.
Sími 471 1017 - 865 8070

 

 

 

 

 

arnholsstadir 

Arnhólsstaðir
Umsjónarmaður er Sigurður Stefánsson
Sími 471 1789

 

 

 

 

 

hjaltalundur

 

Hjaltalundur
Umsjónarmaður er Guðmundur Karl Sigurðsson
Sími: 471 3055

 

 

 

 

Tungubud


Tungubúð

Umsjónarmaður er Stefán Jónasson og Þóra Sigríður Gísladóttir
Sími Stefáns: 471 3036 og 863 3036
Sími Þóru: 471 2019 og 895 3019

 
facebook
Banner
Íbúagátt Fljótsdalshéraðs