Skip to content

Fljótsdalshérað

dot
sh-bg-01.jpg
Almenningssamgöngur Print E-mail

Almenningssamgöngur eru milli Fellabæjar og Egilsstaða. Farnar eru allt að átta ferðir á dag. Ekið er á einum bíl alla virka daga og er lagt upp frá Fellabæ, eins og tímataflan hér að neðan tilgreinir.

Íbúum Fljótsdalshéraðs gefst kostur á að nýta sér almenningssamgöngur í dreifbýli til og frá þéttbýliskjörnunum Hallormsstað og Brúarási, í tengslum við skólaakstur.

Frá og með 11. júní n.k. verður hafin gjaldtaka fyrir almennings­sam­göng­ur innan þéttbýlis á Fljótsdalshéraði.

Frá og með 11. júní n.k. gilda miðar og mánaðarkort í almenn­ings­samgöngur á Fljóts­dals­héraði einnig í flugvallarrútuna sem ekur  á milli Egils­staða og flug­vall­ar­ins. Bæði almenningsvagninn og flugvallarrútan stöðva við Íþrótta­miðstöðina á Egilsstöðum og Landsbankann.

Gjaldskrá:

10 miðar              kr. 1.500.-
Mánaðarkort     kr. 3.500.-

Veittur er systkinaafsláttur af mánaðarkortum. Afslátturinn nemur 25% af öðru korti og 50% af hinu þriðja.

Sé kort keypt fyrir fleiri mánuði er sami afsláttur, þ.e. 25% afsláttur er veittur af öðrum mánuði og 50% afsláttur af öllum mánuðum umfram það.

Ef keypt er þriggja mánaða kort kostar það kr. 7.900.- en tvö slík kort kosta kr. 13.800.- og þrjú kr. 17.700.- (miðað við systkinaafslátt).

Hægt er að kaupa mánaðakort í Íþróttamiðstöðinni, í verslun N1 og á bæjarskrifstofunum.

Miða er hægt að kaupa í Fellabakaríi auk áður nefndra staða.

Tímatafla fyrir akstur í þéttbýli Egilsstaða og Fellabæjar, tekur gildi frá og með 1.september 2012

Gjaldskrá strætó, gildir frá og með 11.júní 2012

 

 
facebook
Banner
Íbúagátt Fljótsdalshéraðs