|
Á Fljótsdalshéraði eru fjögur íþróttahús í Fellabæ, Brúarási, Hallormsstað og á Egilsstöðum.
Fjölnotahúsið í Fellabæ
Fjölnotahúsið í Fellabæ var tekið í notkun í lok árs 2004. Íþróttasalurinn er 323 m2 að stærð og lagður parketi. Hann er fyrst og fremst notaður til íþróttakennslu fyrir grunnskóla og leikskóla fyrrihluta dags, en síðdegis og á kvöldin er hann leigður út til einstaklinga og íþróttafélagana. Einstaka sinnum er fjölnotasalurinn notaður fyrir menningarlegar uppákomur s.s. dansleiki og þorrablót Fellamanna. Umsjónarmaður með Fjölnotahúsinu í Fellabæ er Hreinn Halldórsson – sími 470 0778. 
Íþróttahús Brúaráss
Íþróttahúsið í Brúarási er byggt við Brúarásskóla og er um 400 m2 að stærð. Húsið er aðallega notað til íþróttakennslu við Brúarásskóla og nýtist jafnframt vel til íþrótta- og tómstundastarfs með nemendum skólans. Þó að skólinn noti húsið mestmegnis eru þó alltaf einhverjir tímar leigðir út til einkanota. Samkomur eru líka haldnar í salnum og má þar t.d. nefna þorrablót sveitarinnar. Umsjónarmaður með íþróttahúsinu í Brúarási er Stefanía Malen Stefánsdóttir, skólastjóri Brúarásskóla, netfang: stefaniam(hjá)egilsstadir.is
Íþróttahús Hallormsstað
Íþróttahúsið á Hallormsstað er í eigu Hallormsstaðaskóla, enda er það samkomusalur skólans og almenn kennslustofa. Íþróttasalurinn sjálfur er um 200 m2 að stærð og lagður dúk. Íþróttakennsla við Hallormsstaðaskóla fer fram í húsinu og einnig nýtist það vel til tómstundastarfs fyrir nemendur. Í íþróttasalnum er ágæt ráðstefnuaðstaða með hljóðkerfi, skjávarpa, föstu sýningartjaldi og þráðlausu netsambandi. Hallormsstaðaskóli notar húsið að mestu en einhverjir tímar eru leigðir út til einkanota og einnig hafa nemendur Hússtjórnarskólans á Hallormsstað haft þar fasta tíma. Íþróttahúsið er nokkuð vel tækjum búið til íþróttaiðkunar og við það er kennslusundlaug sem notuð er vor og haust. Umsjónarmaður með íþróttahúsinu á Hallormsstað er skólastjóri Hallormsstaðaskóla, sími 4700 630. 
Íþróttamiðstöðin Egilsstöðum
Íþróttamiðstöðin á Egilsstöðum er með íþróttasal sem er 1200 m2 sem hægt er að skipta niður í þrjár einingar. Á efri hæð hússins er líkamsræktaraðstaða með góðum tækjum og í kjallara hússins er lítill salur þar sem boðið er upp á ýmis konar leikfimi. Íþróttakennsla Egilsstaðaskóla fer fram í Íþróttamiðstöðinni. Einnig hefur Menntaskólinn á Egilsstöðum aðgang að húsinu til íþróttakennslu og þjálfunar. Aðrir aðalnotendur eru Íþróttafélagið Höttur og Íþróttafélag Menntaskólans. Félagsmiðstöðin Ný-ung hefur verið með opið hús í Íþróttamiðstöðinni annað hvert föstudagskvöld. Auk hefðbundinnar íþróttastarfsemi má nefna að Íþróttamiðstöðin gegnir mikilvægu hlutverki sem fjölnotahús, þar eru haldnir tónleikar, ýmsar sýningar og aðrar stórar samkomur. Forstöðumaður Íþróttamiðstöðvarinnar er Hreinn Halldórsson, sími: 4700 777.
Íþróttavellir
Vilhjálmsvöllur
Á Egilsstöðum er góður og fjölnota íþróttavöllur. Frjálsíþróttavöllur með sex hlaupabrautum með gerviefni sem er einnig á stökksvæðum. Innan brautar er knattspyrnuvöllur með grasi. Við annan enda vallarins er grassvæði sem notað hefur verið til æfinga fyrir yngri flokka í knattspyrnu. Hjá Vilhjálmsvelli stendur, Hettan, sem í senn er áhaldageymsla og félagsaðstaða Hattar. Þar eru skátar einnig með sína félagsaðstöðu. Í kjallara hússins er búningsaðstaða og sturtur.
Ýmis mót hafa farið fram á Vilhjálmsvelli bæði í knattspyrnu og frjálsum íþróttum og má þar nefna Landsmót UMFÍ 2001 og Unglingalandsmótið 2011.
Völlurinn er nefndur í höfuðið á einum mesta íþróttagarpi Fljótsdalshéraðs, Vilhjálmi Einarssyni sem var fyrstur Íslendinga til að hljóta verðlaun á Ólympíuleikum. Vilhjálmur hlaut silfurverðlaun í þrístökki og til gamans má geta þess að silfurstökk Vilhjálms er málað í tartanbrautina þar sem þrístökk fer fram á vellinum.
Höttur rekstrarfélag hefur umsjón með Vilhjálmsvelli ásamt öðrum vallarsvæðum á Fljótsdalshéraði.
Fellavöllur
Fellavöllur var tekin formlega í notkun í desember 2007. Hann er Fifa keppnisvöllur í fullri stærð og uppfyllir öll skilyrði keppnisvallar að undanskildum áhorfendastúkum. Völlurinn er flóðlýstur og upphitaður með búningsaðstöðu.
Fellavöllur er aðal æfingasvæði Knattspyrnudeildar Hattar.
Sparkvellir á Fljótsdalshéraði
Á Fljótsdalshéraði eru þrír sparkvellir sem byggðir voru í samstarfi við KSÍ. Þeir standa við grunnskóla sveitarfélagsins, Egilsstaðaskóla, Brúarásskóla og Hallormsstaðaskóla.
|
Hér má sjá heimasíðu íþróttamannvirkja
|