|
Þekkingarnet Austurlands (ÞNA) hefur staðið fyrir námskeiðum í íslensku fyrir útlendinga undanfarin ár. Hvert námskeið er 50 kennslustundir. Innihald námskeiðanna er í samræmi við kennsluleiðbeiningarnar Íslenska sem annað mál fyrir fullorðna, útgefnar af menntamálaráðuneytinu árið 2000. Til þess að fullnægja ákvæðum laga um búsetuleyfi þarf þátttakandi að sækja þrjú slík námskeið eða að standast stöðupróf í íslensku. Flestir þátttakendur sækja þó námskeiðin til að auka færni sína í íslensku og til að kynnast íslensku samfélagi betur, en einnig til að fullnægja skilyrðum um búsetuleyfi. Starfsmenntasjóðir stéttarfélaga og atvinnurekenda styrkja þátttakendur til greiðslu kostnaðar við námskeiðin, auk þess taka margir vinnuveitendur þátt í að greiða kostnað við þáttöku starfsmanna á námskeiðunum og ríkið styrkir námskeiðahaldið. Þáttakendur sem ekki eru í fastri vinnu eða eru námsmenn þurfa þó að bera umtalsverðan kostnað sjálfir
Þekkingarnet Austurland Tjarnarbraut 39e 700 Egilsstaðir Sími: 471-2838 Fax: 471-2238 Netfang:
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Veffang: http://tna.is/
|