Skip to content

Fljótsdalshérað

dot
sh-bg-10.jpg
Aðrar menntastofnanir Print E-mail

Þekkingarnet Austurlands 

Þekkingarnet Austurlands (ÞNA) er samstarfsvettvangur fræðslustofnana, atvinnulífs og sveitarfélaga. Það er hins vegar ekki skóli, heldur er það tengiliður milli þeirra aðila sem sinna formlegri háskólakennslu og þeirra sem bjóða upp á símenntun og fullorðinsfræðslu annars vegar og hins vegar einstaklinganna, fyrirtækja og stofnana áthekkingarnet Austurlandi.

Þekkingarnet Austurlands kynnir, miðlar og skipuleggur nám sem einstaklingar og fyrirtæki í fjórðungnum kunna að þurfa og óska eftir hverju sinni. Það leggur á ráðin með faghópum ýmis konar sem vilja bæta við þekkingu sína, um lengra eða styttra nám, útbýr sérvalin námskeið eftir óskum og sér um undirbúning þeirra s.s. útvegun kennara, húsnæðis o.fl

Þekkingarnet Austurlands kemur á framfæri óskum íbúa Austurlands við samstarfsaðila sína og getur einnig haft frumkvæði að námsframboði

Helstu viðfangsefni ÞNA eru:
• Háskólanám: Þjónusta til einstaklinga sem hafa áhuga á að stunda háskólanám, ýmist grunnmenntun eða framhaldsnám.
• Rannsóknir og þróun: Samstarf og þjónusta við háskóla, nema í meistara eða doktorsnámi, rannsóknastofnanir, aðrar opinberar stofnanir og fyrirtæki sem vilja stunda rannsóknir á svæðinu.  Þjónusta við þekkingarsetur og rannsóknastarfsemi á svæðinu t.d. varðandi fjármögnun rannsókna, tengslastarf og rekstur samstarfsverkefna.
• Símenntun: Samstarf og þjónusta við atvinnulíf, einstaklinga og framhaldsskóla. Leitast verði við að bjóða upp á sérsniðin námskeið fyrir fyrirtæki og stofnanir sem og almenna símenntun sniðna að áhuga hvers og eins.

Þekkingarnet Austurland
Tjarnarbraut 39e
700 Egilsstaðir
Sími: 471-2838
Fax471-2238
Netfang: This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Veffang: http://tna.is

 
facebook
Banner
Íbúagátt Fljótsdalshéraðs