|
Tónlistarskólar eru starfræktir á Egilsstöðum, í Fellabæ, Brúarási og auk þess starfar deild á Hallormsstað. Mjög mikil þátttaka er í starfi tónlistarskólanna og tónlistarskólarnir gegna mikilvægu hlutverki í menningarstarfi sveitarfélagsins. Skólarnir hafa hver og einn skapað sér sérstöðu og því er val á tónlistarnámi óvenju fjölbreytt og ættu allir tónlistaráhugamenn að geta fundið svörun við sínu áhugamáli í starfi þeirra. Fjölbreytnin í starfi tónlistarskólanna glæðir menningarstarfið fjörmiklu lífi.
Tónlistarskólinn Egilsstöðum og Hallormsstað
Tónlistarskólinn á rætur að rekja aftur til 1971 þegar fyrirrennari hans, Tónskóli Fljótsdalshéraðs var stofnaður. Höfuðstöðvar skólans eru í nýbyggingu Egilsstaðaskóla við Tjarnarlönd 11 á Egilsstöðum. Þar er skrifstofa og aðalstarfsstöð skólans en kennsla fer einnig fram í Hallormsstaðaskóla. Í kringum 150 nemendur stunda að jafnaði einstaklingsnám við skólann á fjölmörg hljóðfæri auk söngnáms. Áhersla hefur verið á að bjóða upp á fjölbreytt nám í klassískri tónlist, en jafnframt fá nemendur sem þess óska tækifæri til að spreyta sig á popptónlist. Reglulega eru haldnir tónfundir þar sem nemendur fá tækifæri til að koma fram auk þess sem stærri tónleikar eru haldnir nokkrum sinnum á skólaárinu. Flestir stærri tónleikar fara fram í Egilsstaðakirkju.
Umsóknum um skólavist skal skila rafrænt hér.
Skólastjóri er Daníel Arason.
Tónlistaskólinn á Egilsstöðum Tjarnarlönd 11 Sími: 4700 645 Netfang:
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Veffang: http://www.fljotsdalsherad.is/tonegilsstodum/
Tónlistarskólinn í Fellabæ
Tónlistarskólinn var stofnaður árið 1994 og fyrsti skólastjórinn var Rosemary Hewlett. Ármann Einarsson tók við skólastjórn árið 1995 og gegndi því starfi til vors 2004 og má segja að hann hafi markað þá skólastefnu sem skólinn starfar eftir í dag
Nemendur hafa undanfarin ár verið um 80-90, en hafa flestir verið um 100. Kennarar eru 4 auk skólastjóra. Vinsælust er poppdeildin þ.e. t.d. gítar, trommur, bassi og poppsöngur, en einnig er kennt á píanó, harmonikku, þverflautu, fiðlu, blokkflautu og hljómborð. Þá er einnig starfræktur forskóli fyrir þau börn sem byrja í grunnskóla að ári.
Skólinn er staðsettur á efstu hæð í Fellaskóla og hefur þar þrjár stofur til umráða, en einnig hefur hann aðgang að æfingahúsnæði í kjallara skólans. Í gegnum árin hefur skapast mikið og gott samstarf við Fellaskóla og má nefna að nemendur Fellaskóla hafa fengið að sækja tónlistarskólann á skólatíma og má segja að hefð sé komin á það skipulag. Einnig kemur tónlistarskólinn oft að árshátíð grunnskólans.
Skólastjóri er Drífa Sigurðardóttir.
Tónlistarskólinn í Fellabæ Sími: 4700 646 Netfang:
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Veffang http://www.fljotsdalsherad.is/tonfellabae/
Tónlistarskólinn á Brúarási
Tónlistarskólinn í Brúarási er starfræktur í sínu eigin húsnæði í Brúarásskóla. Stefna skólans er að sinna þörfum hvers og eins og nemendur, sem eru um 40, eru á öllum aldri. Hljóðfæraúrvalið er fjölbreytt, og jafnframt hafa nemendur stundað söngnám. Áhersla er jöfn á iðkun popp og klassískrar tónlistar. Náið og gott samstarf er við grunnskólann á Brúarási þar sem nemendur fá að sækja tónlistarnám sitt á skólatíma. Tónlistarskólinn tekur þátt í ýmsum viðburðum í grunnskólanum svo sem litlu jólum og árshátíðinni.
Skólastjóri skólans er Jón Arngrímsson.
Tónlistarskólinn á Brúarási Sími: 4 700 628 Netfang:
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Veffang: http://www.fljotsdalsherad.is/tonbruaras/
|