Skip to content

Fljótsdalshérað

dot
sh-bg-01.jpg
Íþróttamiðstöð Print E-mail

ithrottamidstod_egilsstodumÍþróttamiðstöðin á Egilsstöðum

Í Íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum er mjög góð aðstaða fyrir ýmiss konar íþróttastarfsemi.  Í henni er 1200 m2 íþróttasalur sem hægt er að skipta niður í þrjár einingar.  Á efri hæð hússins er líkamsræktaraðstaða með góðum tækjum og í kjallara hússins er lítill salur þar sem boðið er upp á ýmis konar leikfimi.
Útisundlaug sem er 25 m löng er við íþróttamiðstöðina, með tveimur heitum pottum, vaðlaug og rennibraut. 

Íþróttakennsla Grunnskólans  Egilsstöðum og Eiðum fer fram í Íþróttamiðstöðinni.  sundlaug_egilsstodumEinnig hefur  Menntaskólinn á Egilsstöðum aðgang að húsinu til íþróttakennslu og þjálfunar. Aðrir aðalnotendur eru Íþróttafélagið Höttur og Íþróttafélag Menntaskólans. Félagsmiðstöðin Ný-ung hefur verið með opið hús í Íþróttamiðstöðinni annað hvert föstudagskvöld.
Auk hefðbundinnar íþróttastarfsemi má nefna að Íþróttamiðstöðin gegnir mikilvægu hlutverki sem fjölnotahús, þar eru haldnir tónleikar, ýmsar sýningar og aðrar stórar samkomur.

Forstöðumaður Íþróttamiðstöðvarinnar er This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it ,        sími: 4700 777.

Hér má sjá heimasíðu íþróttamannvirkja

 
facebook
Banner
Íbúagátt Fljótsdalshéraðs