Skip to content

Fljótsdalshérað

dot
sh-bg-11.jpg
Umhverfis- og héraðsnefnd Print E-mail

Umhverfis- og héraðsnefndnefnd Fljótsdalshéraðs fjallar um umhverfis- og náttúruverndarmál og um málefni dreifbýlis og hálendis í sveitarfélaginu í umboði bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs. Nefndin gerir tillögu til bæjarstjórnar um stefnumörkun, reglur og gjaldskrár á sviði umhverfismála og náttúruverndar og á sviði málefna dreifbýlis og hálendis í sveitarfélaginu.
Hér má nálgast samþykkt fyrir umhverfis- og héraðsnefnd. 

Helstu verkefni umhverfis- og héraðsnefndar eru;

  • náttúruvernd, skv. lögum um náttúruvernd,
  • gróðurvernd, skv. lögum um landgræðslu,
  • friðlýst svæði og náttúruminjar skv. lögum um náttúruvernd,
  • námumál, skv.  lögum um náttúruvernd,
  • umhverfismat, skv. lögum um umhverfismat áætlana,
  • staðardagskrá 21,
  • úrgangsmál, umsjón með lögbundnum verkefnum sveitarfélaga skv. lögum um meðhöndlun úrgangs,
  • eftirlit með hirðingu opinna svæða,
  • vinnuskóli og umhverfisfræðsla í samstarfi við fræðslufulltrúa sveitarfélagsins,
  • merking stíga og gönguleiða í dreifbýli,
  • miðlun upplýsinga til almennings um náttúruvætti, gönguleiðir og umgengni við náttúruna,
  • samstarf við stofnanir ríkisins á sviði umhverfismála og náttúruverndar,
  • samstarf við frjáls félagasamtök sem tengjast starfi nefndarinnar,
  • umsagnaraðili um skipulagsmál samkvæmt skipulags- og byggingarlögum, náttúruverndarlögum og lögum um umhverfismat,
  • fara með afréttarmál, fjallskil, girðingamál og beitarstýringu, skógrækt og nýtingu hlunninda
  • vera ráðgefandi fyrir bæjarstjórn um dýraverndunarmál og búfjáreftirlit,
  • vera ráðgefandi fyrir bæjarstjórn um málefni vegna framkvæmda á hálendinu, t.d. með því að halda utan um samninga sem gerðir hafa verið og verða gerðir vegna þeirra, sinna eftirlitshlutverki varðandi þær kvaðir sem fram koma í umhverfismati um Kárahnjúkavirkjun og vera faglegur bakhjarl um málefni hálendisins norðan Vatnajökuls,
  • vera ráðgefandi vegna mála er varða hagsmuni íbúa dreifbýlisins vegna þjóðgarðs og verndarsvæða norðan Vatnajökuls og vegna Vatnajökulsþjóðgarðs, -
  • vera bæjarstjórn til aðstoðar um málefni óbyggðanefndar,
  • hafa umsjón með jarðeignum sveitarfélagsins, fjallaskálum, gangnamannaskýlum, nema lög kveði á um annað,
  • gera tillögur um styrkvegi og öflun fjármagns til uppbyggingar þeirra og viðhalds,
  • vera umsagnaraðili um snjómokstur í dreifbýli,
  • vera tengiliður milli íbúanna og bæjarstjórnar um málefni dreifbýlis t.d. með því að standa fyrir íbúaþingum,
  • veita bæjarstjórn umsögn og gera tillögur á sviði sérmálefna dreifbýlisins.

Framkvæmda- og þjónustufulltrúi, Úlfar Trausti Þórðarson, er starfsmaður nefndarinnar.
Viðtalstímar frá kl. 10.00 - 12.00 alla virka daga..
Viðtalspantanir tekur afgreiðsluritari  á skrifstofu sveitarfélagsins í Fellabæ í síma 4700 730.

Formaður Umhverfis- og héraðsnefndar er Ester Kjartansdóttir.

Reglulegir fundir nefndarinnar eru haldnir einu sinni í mánuði. 

Hægt að lesa og leita í fundargerðum hér á vefnum.

Umhverfis- og héraðsnefnd skipa:

Aðalmenn:
Esther Kjartansdóttir,  Á   formaður    esther(hjá)simnet.is
Baldur Grétarsson,   Á  skip2(hjá)emax.is
Eyrún Arnardóttir,   B
Aðalsteinn Ásmundarson,  L  alliasmunds(hjá)live.com
Ásta Sigurðardóttir,  D    astasig(hjá)emax.is

Varamenn:
Guðríður Guðmundsdóttir, Á  gurry(hjá)vhe.is og foss(hjá)simnet.is
Stefán Sveinsson,   Á      gaedingatours(hjá)simnet.is
Magnús Karlsson, B    hallbj(hjá)emax.is
Þorsteinn Bergsson, L   unaos(hjá)simnet.is
Vilhjálmur Snædal, D  

 

 
facebook
Banner
Íbúagátt Fljótsdalshéraðs