|
Menningar- og íþróttanefnd hefur umsjón með menningar-, íþrótta- og frístundamálum í sveitarfélaginu í umboði bæjarstjórnar. Menningar- og íþróttanefnd gerir tillögu til bæjarstjórnar um stefnumörkun, reglur og gjaldskrár á sviði menningar-, íþrótta- og frístundamála Fljótsdalshéraðs. Hér er hægt að nálgast samþykkt fyrir menningar- og íþróttanefnd.
Helstu verkefni menningar- og íþróttanefndar eru;
-
að stuðla að öflugu menningar-, íþrótta- og frístundastarfi á Fljótsdalshéraðs og hafa um það samstarf við aðila sem starfa á því sviði, m.a. með gerð sérstakra samstarfssamninga þar sem það á við,
-
að hafa eftirlit með starfsemi og rekstri menningarstofnana, íþróttamannvirkja og félagsmiðstöðva á vegum Fljótsdalshéraðs,
-
að fylgjast með starfsemi þeirra menningarstofnana og -félaga og félaga er starfa að íþrótta- og frístundamálum og njóta styrkja menningar- og frístundanefndar,
-
að hafa umsjón með hátíðarhöldum á vegum sveitarfélagsins,
-
að sjá til að til séu sem gleggstar upplýsingar um menningar-, íþrótta- og frístundamál á Fljótsdalshéraði og að íbúar hafi upplýsingar um þá þjónustu sem í boði er,
-
að gera tillögur til bæjarstjórnar um staðarval og gerð nýrra mannvirkja sem ætluð eru til íþrótta- eða frístundastarfs
-
að hafa eftirlit með framkvæmd samninga sem gerðir eru við menntamálaráðuneytið um samstarf ríkisins og sveitarfélagsins um menningarmál á Fljótsdalshéraði,
-
hafa umsjón með félagsheimilum í sveitarfélaginu.
-
fara með þau störf sem stjórn bókasafna eru falin skv. 7. gr. laga nr. 36/1997 um almenningsbókasöfn og skv. reglugerðum byggðum á lögunum,
-
gera tillögur um tilnefningu bæjarlistamanns eða listamenn sem hljóta eiga starfslaun skv. reglum Fljótsdalshéraðs þar um
-
tilnefnir þrjá fulltrúa í stjórn Minjasafnsins, m.a. til að fara með umboð sveitarfélagsins á aðalfundi safnsins og einn fulltrúa úr sínum hópi í stjórn Héraðsskjalasafnsins.
Nefndin getur veitt styrki til verkefna innan málaflokksins. Skulu slíkar styrkveitingar veittar í samræmi við reglur sem menningar- og íþróttanefnd semur þar um.
Atvinnu- íþrótta- og menningarfulltrúi, Óðinn Gunnar Óðinsson, er starfsmaður menningar- og íþróttanefndar Viðtalstímar eru frá kl. 10:00 – 12:00 alla virka daga. Viðtalspantanir tekur afgreiðsluritari á aðalskrifstofu sveitarfélagsins í síma 4 700 700.
Formaður Menningar- og íþróttanefndar er Páll Sigvaldason Reglulegir fundir nefndarinnar eru haldnir einu sinni í mánuði.
Hægt er að lesa og leita í fundargerðum hér á vefnum.
Menningar- og íþróttanefnd skipa:
Aðalmenn: Páll Sigvaldason, B Helga Þórarinsdóttir, B helga(hjá)skolaust.is Guðríður Guðmundsdóttir, Á gurry(hjá)vhe.is og foss(hjá)simnet.is Árni Ólason, L arniola(hjá)me.is Anna Alexandersdóttir, D annaalex(hjá)simnet.is Varamenn: Heiður Vigfúsdóttir, B austurfor(hjá)gmail.com
Sigrún Jóna Hauksdóttir, B sigrun(hjá)brunas.is Jón I. Arngrímsson, Á joningi(hjá)egilsstadir.is Ireneusz Kolodziejezyk, L irek.k(hjá)simnet.is Sigríður Sigmundsdóttir, D thorogsigga(hjá)simnet.is
|