|
Atvinnumálanefnd er ráðgefandi nefnd fyrir bæjarstjórn og bæjarráð. Henni er ætlað að styðja við eflingu og uppbyggingu atvinnulífs í sveitarfélaginu, sb. samþykkt fyrir nefndina.
Helstu verksvið:
- Að vinna að framgangi stefnu á sviði atvinnumála t.d. með gerð aðgerðaáætlunar í samráði við aðra hluta stjórnsýslunnar eftir því sem við á. Þá annast nefndin árangursmat og eftirfylgni svo sem mælst er til í stefnunni,
- að gera tillögur um umbætur í starfsumhverfi fyrirtækja í sveitarfélaginu.
- að fjalla um ferðaþjónustutengd mál og aðkomu sveitarfélagsins að þeim,
- að annast tengsl við landshlutasamtök sem tengjast atvinnumálum og gera tillögur að skipan í stjórnir þeirra s.s. Þróunarfélag, Markaðsstofu, Atvinnuþróunarsjóð og Upplýsingamiðstöð og þau hlutafélög sem sveitarfélagið á hlut í,
- að standa fyrir almennum fundum og málþingum um atvinnumál (og þar á meðal um þróun, stöðu og horfur í atvinnumálum),
- að gera kannanir á stöðu atvinnulífsins í sveitarfélaginu,
- að halda utan um markaðs- og kynningarmál sveitarfélagsins,
- að leiða uppbyggingu á miðbæ Egilsstaða, í samstarfi og samvinnu við atvinnulífið og skipulags- og byggingarnefnd,
- að fara með stjórn Atvinnumálasjóðs Fljótsdalshéraðs,
- að fjalla um þau mál sem bæjarstjórn felur nefndinni.
Starfsmaður nefndarinnar er Óðinn Gunnar Óðinsson Viðtalstímar frá kl. 10.00 - 12.00 alla virka daga Viðtalspantanir tekur afgreiðsluritari á aðalskrifstofu sveitarfélagsins í síma 4700 700.
Formaður Atvinnumálanefndar er Gunnar Þór Sigbjörnsson Reglulegir fundir nefndarinnar eu haldnir einu sinni í mánuði. Hægt að lesa og leita í fundargerðum hér á vefnum.
Atvinnumálanefnd skipa:
Aðalmenn: Gunnar Þór Sigbjörnsson , B gunnars(hjá)sjova.is Ingvar Ríkharðsson, B ingvar.ingunn(hjá)simnet.is Jóhann Gísli Jóhannson, Á breidavad(hjá)simnet.is Kristín Björnsdóttir L kristinm (hjá)vr.is Aðalsteinn Jónsson, D allij(hjá)centrum.is
Varamenn: Þorvaldur P.Hjarðar, B thorvaldur(hjá)ver.is Kristjana Jónsdóttir, B kristjanajons(hjá)simnet.is
Sigrún Blöndal L sigrun (hjá)egilsstadir.is
Gunnar Jónsson, Á Þórhallur Harðarson, D thorhallur(hjá)hsa.is
|