Skip to content

Fljótsdalshérað

dot
sh-bg-10.jpg
Skipulags- og mannvirkjanefnd Print E-mail

Skipulags- og mannvirkjanefnd Fljótsdalshéraðs fjallar um skipulags- og byggingarmál og fer með hlutverk skipulags- og bygg­ing­ar­nefndar. Nefndin fjallar einnig um fasteignir sveitarfélagsins, nýbyggingar eða leiguhúsnæði og fer með starfsemi þjónustumiðstöðvar í umboði bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs. Nefndin gerir tillögur til bæjarstjórnar um stefnu í fasteignastjórnun og í skipulags- og byggingarmálum og tekur ákvarðanir á grundvelli skipulags- og byggingarlaga. Hún hefur eftirlit með stefnumörkun og samþykktum í mála­flokkum sem undir hana heyra, hefur frumkvæði að gerð þróunaráætlana og skipulagstillagna og gerir tillögur til bæjarstjórnar um skipulagsáætlanir og breyt­ing­ar á þeim og um reglur og gjaldskrár á sviði fasteignastjórnunar og reksturs þjónustumiðstöðvar, um úthlutun lóða og gatnagerða- og þjónustugjöld.
Hér má nálgast samþykkt fyrir skipulags- og mannvirkjanefnd 

Helstu verefni skipulags- og mannvirkjanefndar eru;

  • skipulags- og byggingamál,
  • aðalskipulag,
  • deiliskipulagsáætlanir,
  • lóðaúthlutanir,
  • Nýbygging gatna og göngustíga
  • umferðarmál,
  • heilbrigðismál,
  • landupplýsingakerfi,
  • fasteignastjórnun á eignum sveitarfélagsins (viðhaldsáætlanir, verkáætlanir) leigusamningar,
  • nýbyggingar sveitarfélagsins,
  • leiguhúsnæði sem er í eigu sveitarfélagsins,
  • þarfagreining vegna nýbygginga sveitarfélgsins,
  • öll viðhaldsverkefni fasteigna ásamt rekstri þeirra og eftirfylgni,
  • félagslegar eignir / leigusamningar og viðhald,
  • Safnahúsið Laufskógum 1 skv. samningi,
  • rekstur þjónustumiðstöðvar ( viðhaldsáætlanir, verkáætlanir ),
  • snjómokstur
  • viðhaldsverkefni gatna og stíga,
  • rekstur fráveitna í þéttbýli,
  • hreinsun opinna svæða,
  • málefni gæludýra,
  • þjónusta við íbúa sveitarfélagsins og stofnanir sem eru á hennar verksviði.

 

Skipulags- og byggingarfulltrúi Ómar Þröstur Björgúlfsson og
Framkvæmda- og þjónustuflulltrúi Úlfar Trausti Þórðarson eru starfsmenn nefndarinnar.
Síma- og viðtalstímar frá kl. 10.00 - 12.00 alla virka daga

Viðtalspantanir tekur afgreiðsluritari á skrifstofu sveitarfélagsins að Lyngási 12  í síma 4700 700.

Formaður Skipulags- og mannvirkjanefndar er Hafsteinn Jónasson hafjonas(hjá)vis.is

Reglulegir fundir nefndarinnar eru haldnir í annarri og fjórðu viku hvers mánaðar eða í sömu viku og fundir bæjarráðs eru haldnir.
Hægt að lesa og leita í fundargerðum hér á vefnum.

Skipulags- og mannvirkjanefnd skipa:

Aðalmenn:
Hafsteinn Jónasson,  Á   formaður  hafjonas(hjá)vis.is
Sigvaldi H. Ragnarsson,  Á    hakonar(hjá)simnet.is
Jónas Guðmundsson,   B   jonas(hjá)egilsstadir.is
Árni Kristinsson,  L       arni(hjá)egilsstadir.is
Þórhallur Harðarson,  D     thorhallur(hjá)hsa.is

Varamenn:
Esther Kjartansdóttir, Á   esther(hjá)simnet.is
Jón Ingi Arngrímsson,  Á   joningi(hjá)egilsstadir.is
Páll Sigvaldason,  B     
Ragnhildur Rós Indriðadóttir,  L    rri(hjá)hsa.is
Óskar Bjarnason,  D   bolholt(hjá)centrum.is

 

 
facebook
Banner
Íbúagátt Fljótsdalshéraðs