Skip to content

Fljótsdalshérað

dot
Skólanefnd Hallormsstaðaskóla Print E-mail

Skólanefnd Hallormsstaðaskóla fer með stjórn grunnskóla, leikskóladeildar og tónlistarskóladeildar á Hallormsstað samkvæmt lögum og reglugerðum sem við eiga í umboði bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs og sveitarstjórnar Fljótsdalshrepps. Orðið skóli vísar hér á eftir til allra áðurgreindra skóla. Auk þess fer nefndin með rekstur íþróttamannvirkja og skólamötuneytis á Hallormsstað og skal gera tillögur um viðhald, endurnýjun og hugsanlega útleigu skólahúsnæðis og íþróttamannvirkja á Hallormsstað eftir því sem við á.

 

 Helstu hlutverk skólanefndar:

  • hefur eftirlit með að öll börn í skólahverfi Hallormsstaðaskóla í Fljótsdalshéraði og Fljótsdalshreppi njóti lögboðinnar fræðslu og umönnunar. Í störfum sínum ber skólaefnd að vinna að því að allir nemendur hljóti sem besta aðstöðu og jöfnust tækifæri til náms og að skólinn veiti sérhverjum nemanda fræðslu og umönnun eftir aldri sínum og þroska og í samræmi við gildandi aðalnámskrár á hverjum tíma,
  • hefur eftirlit með að jafnan sé fyrir hendi fullnægjandi húsnæði og annar útbúnaður. Skólanefnd, ásamt skólastjóra, lítur eftir að uppfylltar séu kröfur laga og reglugerða á þessu sviði og gerir tillögur til bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs og sveitarstjórnar Fljótsdalshrepps um úrbætur,
  • staðfestir áætlun um starfstíma skóla
  • hefur eftirlit með og stuðlar að því að skólanum sé tryggður aðgangur að sérfræði-þjónustu í samræmi við gildandi lög og reglugerðir,
  • hefur eftirlit með skólatengdu starfi sem veitt er í skólunum utan skólatíma
  • úthlutar kennslumagni til skólans

 

Skólanefnd Hallormsstaðaskóla heldur að jafnaði fundi fjórum til fimm sinnum á skólaárinu.

Fræðslufulltrúi, Helga Guðmundsdóttir, er starfsmaður fræðslunefndar.
Viðtalstímar frá kl. 10.00 - 12.00 alla virka daga
Viðtalspantanir tekur afgreiðsluritari á aðalskrifstofu sveitarfélagsins í síma 4700 700.

Aðalmen:
Anna Gunnhildur Ingvarsdóttir, B formaður   gunnhildur(hjá)egilsstadir.is
Karl Lauritzson, D    heima(hjá)simnet.is
Jóhann Þorvarður Ingimarsson,   varsi(hjá)emax.is
Hallgrímur Þórhallsson,   brekka(hjá)fljotsdalur.is

Varamenn:
Soffía Sigurjónsdóttir, Á   brekkubrun(hjá)simnet.is
Ragnhildur Rós Indriðadóttir, L  rri(hjá)hsa.is
Anna Halldóra Ragnarsdóttir,  annatoro(hjá)simnet.is     
Lárus Heiðarsson,  lalli(hjá)skogur.is

 
facebook
Íbúagátt Fljótsdalshéraðs