Skip to content

Fljótsdalshérað

dot
sh-bg-08.jpg
Golfvöllur Print E-mail

Golfklúbbur Fljótsdalshéraðs

Á Fljótdalshéraði er starfræktur einn golfklúbbur, Golfklúbbur Fljótsdalshéraðs (GFH).  Klúbburinn var stofnaður árið 1984.  Golfvöllur klúbbsins, Ekkjufellsvöllur, er staðsettur í Fellunum norðan megin við Lagarfljótið, í um 3 km fjarlægð frá Egilsstöðum og um 1 km sunnan við Fellabæ. Völlurinn er 9 holur, um 2.400 metrar og parið 35 högg.  Völlurinn býr yfir mikilli náttúrufegurð og frábæru útsýni. Hann er staðsettur í klettalandslagi og má segja að völlurinn liggi þar á þremur hæðum í klettabeltinu, sem gerir hann einstakan og skemmtilegan að spila. Talsverðar endurbætur hafa verið gerðar á vellinum undanfarin ár og hafa alls 6 brautir af 9 tekið einhverjum breytingum, brautir lengdar, nýjar flatir, teigar og glompur mótaðar o.s.frv.

Gott æfingasvæði er við Ekkjufellsvöll og er boltasjálfsali við golfskálann þar sem hægt er að fá æfingabolta. Peningar í sjálfsalann eru seldir bæði í Golfskálanum og á bensínstöð Olís í Fellabæ.

Allir eru boðnir hjartanlega velkomnir í golf á Héraði.

 
facebook
Banner
Íbúagátt Fljótsdalshéraðs