Vilhjálmsvöllur
Á Egilsstöðum er góður og fjölnota íþróttavöllur. Frjálsíþróttavöllur með sex hlaupabrautum með gerviefni sem er einnig á stökksvæðum. Innan brautar er knattspyrnuvöllur með grasi. Við annan enda vallarins er grassvæði sem notað hefur verið til æfinga fyrir yngri flokka í knattspyrnu. Hjá Vilhjálmsvelli stendur, Hettan, sem í senn er áhaldageymsla og félagsaðstaða Hattar. Þar eru skátar einnig með sína félagsaðstöðu. Í kjallara hússins er búningsaðstaða og sturtur.
Ýmis mót hafa farið fram á Vilhjálmsvelli bæði í knattspyrnu og frjálsum íþróttum og ber þar hæst Landsmót UMFÍ 2001.
Völlurinn er nefndur í höfuðið á einum mesta íþróttagarpi Fljótsdalshéraðs, Vilhjálmi Einarssyni sem var fyrstur Íslendinga til að hljóta verðlaun á Ólympíuleikum. Vilhjálmur hlaut silfurverðlaun í þrístökki og til gamans má geta þess að silfurstökk Vilhjálms er málað í tartanbrautina þar sem þrístökk fer fram á vellinum.
Höttur rekstrarfélag hefur umsón með Vilhjálmsvelli ásamt öðrum vallarsvæðum á Fljótsdalshéraði.
Starfsmaður þess er Víglundur Páll Einarsson s. 867-8562.
Fellavöllur
Fellavöllur var tekin formlega í notkun í desember 2007. Hann er Fifa keppnisvöllur í fullri stærð og uppfyllir öll skilyrði keppnisvallar að undanskildum áhorfendastúkum. Völlurinn er flóðlýstur og upphitaður með búningsaðstöðu.
Fellavöllur er aðal æfingasvæði Knattspyrnudeildar Hattar.
Umsjónarmaður með Fellavelli er Víglundur Páll Einarsson s. 867-8562.
Sparkvellir á Fljótsdalshéraði
Á Fljótsdalshéraði eru þrír sparkvellir sem byggðir voru í samstarfi við KSÍ. Þeir standa við grunnskóla sveitarfélagsins, Egilsstaðaskóla, Brúarásskóla og Hallormsstaðaskóla.
|