Skip to content

Fljótsdalshérað

dot
sh-bg-11.jpg
Háskólanámssetur Print E-mail

Í Háskólanámssetri Þekkingarnets Austurlands (ÞNA) að Vonarlandi á Egilsstöðum fá fjarnemar aðgang að mjög góðum tölvutengingum, öflugum tölvum og myndfundabúnaði. Í setrinu eru einnig kennslustofur og aðstaða fyrir thekkingarnethóp- og verkefnavinnu. Þar að auki geta nemendur sótt sér upplýsingar og ráðgjöf á staðnum. Húsnæði Háskólanámsseturs ÞNA er einnig nýtt fyrir námskeiðahald af ýmsu tagi á vegum ÞNA og tengdra aðila.
 
Fjarnemar sækja kennslu og þjónustu í háskólanámssetrinu og þar hafa starfsmenn ÞNA á Egilsstöðum vinnuaðstöðu. Þar er sömuleiðis aðstaða fyrir kennara til að hitta nemendahópa og til að vinna tímabundið að verkefnum á Austurlandi. Fjarnemum er einnig veitt þjónusta í fjarnámsverum annars staðar á Austurlandi s.s. í Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellsýslu, Verkmenntaskóla Austurlands og í fjarnámsverum sveitarfélaga.

Þekkingarnet Austurland
Tjarnarbraut 39e
700 Egilsstaðir
Sími: 471-2838
Fax: 471-2238
Netfang: This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Veffang: http://tna.is/

 

 
facebook
Banner
Íbúagátt Fljótsdalshéraðs