Skip to content

Fljótsdalshérað

dot
sh-bg-08.jpg
Dagforeldrar Print E-mail

Daggæslu í heimahúsum er sinnt af sjálfstætt starfandi dagforeldrum sem hafa formlegt leyfi yfirvalda til þess. Leyfi eru veitt samkvæmt reglugerð um daggæslu barna í heimahúsum og sér leikskólafulltrúi um útgáfu starfsleyfa til daggæslu.
Leikskólafulltrúi hefur umsjón með lögbundnu eftirliti eins og kveðið er á um í reglugerð um daggæslu barna í heimahúsum nr.907/2005

Gjaldskrá

Gjaldskrá dagforeldra liggur ekki fyrir þar sem hún er frjáls, sbr. ákvörðun Samkeppnisráðs frá 1991. Fljótsdalshérað greiðir ákveðna upphæð með hverju barni sem vistað er hjá dagforeldrum. Til þess að njóta niðurgreiðslu frá Fljótsdalshéraði þurfa foreldrar að eiga lögheimili í sveitarfélaginu. Eyðublöðin er hægt að nálgast á skrifstofu Fljótsdalshéraðs, Lyngási 12, Egilsstöðum og hjá dagforeldrum.
Reglur um niðurgreiðslu á daggæslu í heimahúsum er hægt að nálgast hér.

• Niðurgreiðslur Fljótsdalshéraðs vegna daggæslu í heimahúsi

Starfandi dagforeldrar

Þórdís Kristvinsdóttir
Sólvöllum 6
700 Egilsstaðir
Sími: 565 0887, 894 5669

 
facebook
Banner
Íbúagátt Fljótsdalshéraðs