Fljótsdalshérað býður nýja íbúa hjartanlega velkomna.
Hér er hægt að fá gagnlegar upplýsingar ef flutt er í Fljótsdalshérað. Meðal annars um hvert á að skila inn flutningstilkynnningu, flutning síma, hitaveitu, rafveitu, fyrirtæki sem flytja búslóðir, allt varðandi húsnæðismál, atvinnumöguleika og innritun barna í leik- og grunnskóla.
Verið velkomin til búsetu á Fljótsdalshéraði
Welcome to Fljótsdalshérað
Flutningstilkynning: Búferlaflutninga ber að tilkynna á aðalskrifstofu Fljótsdalshéraðs, Lyngási 12, Egilsstöðum innan við viku frá flutningi. Umsóknareyðublöð liggja í afgreiðslu. Einnig er hægt að nálgast eyðublöð með rafrænum hætti á heimasíðu Þjóðskrár og skila útfylltum á aðalskrifstofu Fljótsdalshéraðs.
Flutningur síma: Hægt er að flytja gamla símanúmerið með sér hvert á land sem er. Þeir sem eru að sækja um símanúmer í fyrsta skipti skulu snúa sér til þjónustumiðstöðvar Símans.
Veffang: http://www.siminn.is/einstaklingar/heimasiminn/askrift/ Síminn þjónustuver: 800 7000
Endursöluaðili Símans á Egilsstöðum: Tölvulistinn Kaupvangi 6, Sími 414 1735
Endursöluaðilar Símans veita upplýsingar um þær vörur og þjónustu, sem er í boði. Þar er m.a. hægt að sækja um síma, aðgang að internetþjónustu og Sjónvarpi Símans, en hvorki greiða reikninga né gera léttkaup.
Hitaveita: Hitaveita Egilsstaða og Fella er sjálfstætt sameignarfyrirtæki. Nær 3.000 íbúar eru á veitusvæði HEF sem nær yfir þéttbýliskjarnana Egilsstaði og Fellabæ, nálæga býli ásamt frístundabyggðum á Einarsstöðum og Úlfsstöðum. Skrifstofa Hitaveitunar er að Einhleypingi 1 Sími 470 0787 Fax: 471 2165 Netfang:
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Vefsíða: hef.is
Rafveita: Rarik sér um rafkerfið á Fljótsdalshéraði.
Rarik skrifstofa Þverklettum 2-4 Sími: 528 9000 Veffang: www.rarik.is
Búslóðaflutningar: Hægt er að hafa samband við eftirfarandi fyrirtæki ef flytja þarf búslóð
Flytjandi Lyngási 10, 700 Egilsstöðum Sími: 525-7970
Landflutningar-Samskip Kaupvangi 25, 700 Egilsstöðum Sími: 458 8800 Fax: 458 8808
Sendibílaþjónusta Austurlands Dagur Indriðason Sími: 899 0959 og 855 4359 Netfang:
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Lóðir til nýbygginga: Skipulags- og umhverfisdeild Fljótsdalshéraðs, Lyngási 12, Egilsstöðum, veitir allar upplýsingar um lóðir og framkvæmdir. Sjá einnig húsbyggjendur og lausar lóðir hér á síðunni.
Kaup á nýju og notuðu húsnæði: Kaup og sala á húsnæði er með blómlegasta móti á Austurlandi. Tvær fasteignasölur eru starfræktar á Fljótsdalshéraði.
Domus Egilsstaðir Lyngási 5-7, 700 Egilsstöðum Sími: 545 0555 Fax: 440 6001 Netfang:
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Veffang: www.domus.is InnI fasteingansala Lagarási 4, 700 Egilsstöðum Sími: 580 7905 Fax: 580 7901 Netfang:
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Veffang: inni.is
Leiguhúsnæði: Eyðublöð fyrir gerð húsaleigusamninga er hægt að nálgast í afgreiðslu á aðalskrifstofu Fljótsdalshéraðs. Sjá nánari upplýsingar undir leiguhúsnæði hér á síðunni. Úthlutun leiguíbúða í eigu sveitarfélagsins er á vegum félagsþjónustunar. Upplýsingar veitir þjónustufulltrúi fjölskyldusviðs á aðalskrifstofu Fljótsdalshéraðs, mánudaga - fimmtudaga milli kl. 9.00 – 15.00. Hægt er að fá upplýsingar um leiguhúsnæði á almennum markaði hjá
Rentus, leigumiðlun Lyngási 5-7, 700 Egilsstöðum Sími: 545 0555 Veffang: rentus.is
Húsaleigubætur: Upplýsingar um rétt til húsaleigubóta og afgreiðslu þeirra veitir þjónustufulltrúi fjölskyldusviðs á aðalskrifstofu Fljótsdalshéraðs, mánudaga – fimmtudaga milli kl. 9.00 – 15.00. Umsóknareyðublöð, lög og reglugerðir fást einnig hjá þjónustufulltrúa. Nánari upplýsingar má nálgast hjá félagsmálaráðuneytinu.
Atvinnumöguleikar: Upplýsingar um laus störf eru hjá
Svæðisvinnumiðlun Austurlands Miðás 1, 700 Egilsstaðir Sími 512 8280 Fax 471 2287 Netfang:
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Veffang: www.vinnumalastofnun.is/vinnumalastofnun/thjonustuskrifstofur/austurland/
Innritun barna í grunnskóla Innritun barna í grunnskóla fer fram hjá skólastjóra viðkomandi skóla. Fjórir grunnskólar eru á Fljótsdalshéraði, Brúarásskóli, Fellaskóli, Grunnskólinn Egilsstöðum og Eiðum og Hallormsstaðaskóli. Allir grunnskólarnir eru einsetnir og heyra undir Fræðslunefnd og er Helga Guðmundsdóttir, fræðslufulltrúi starfsmaður þess.
Innritun barna í leikskóla Á Fljótsdalshéraði eru 4 leikskólar: Leikskólinn Brúarási, Hádegishöfði í Fellabæ. Á Hallormsstað er Skógarsel og einn leikskóli er á Egilsstöðum, Tjarnarskógur sem starfar á tveimur stöðum á Egilsstöðum, við Skógarlönd og Tjarnarlönd. Sækja þarf um leikskóla á sérstöku eyðublaði sem fæst á bæjarskrifstofu Fljótsdalshéraðs. Umsóknum skal skila á bæjarskrifstofu Fljótsdalshéraðs, Lyngási 12, Egilsstöðum.
|