
| Laus störf |
|
|
|
Aðstoðarskólastjóra við leikskólann Tjarnarskóg á Egilsstöðum Leikskólinn Tjarnarskógur á Egilsstöðum auglýsir eftir aðstoðarskólastjóra. Á Tjarnarskógi eru um 170 börn á 8 deildum og tveimur starfsstöðvum, Tjarnarlandi og Skógarlandi. Tjarnarskógur horfir til fjölgreindarkenninga Gardners í sínum starfsaðferðum. Gildi skólans eru Gleði, Virðing, Samvinna og Fagmennska. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn til að taka þátt í að stjórna og leiða gott faglegt starf í lýðræðislegu skólaumhverfi. Frumkvæði, góðir skipulagshæfileikar og samstarfsvilji eru mikilvægir eiginleikar. Í Tjarnarskógi leggjum við áherslu á samvinnu, nýtingu mannauðs og skapandi lausnaleit. Jákvæðni og lipurð í samskiptum eru eiginleikar sem við metum mikils. Hæfniskröfur byggja á 10. gr. laga um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla nr. 87/2008. Reynsla af stjórnunarstörfum er mikilvægur kostur og framhaldsmenntun á sviði stjórnunar er æskileg. Lögð áhersla á vilja og áhuga á að taka þátt í stjórnunarverkefnum sem styðja farsælt og metnaðarfullt leikskólastarf. Laun skv. kjarasamningi Félags stjórnenda í leikskólum og launanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga. Upplýsingar um leikskólastarfið og störf aðstoðarskólastjóra veitir leikskólastjóri, Guðný Anna Þóreyjardóttir í síma 898 9092 eða á netfanginu This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it . Umsóknir um stöðuna skulu berast til leikskólastjóra á netfangið This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it í síðasta lagi 5. júní nk. Umsókninni skal fylgja greinargott yfirlit yfir störf umsækjanda og menntun, stjórnunarreynslu og hver þau verkefni sem hann hefur unnið við og varpað geta ljósi á færni hans til að sinna stjórnunarstarfi. Fellaskóli auglýsir 33% starf í textílmennt.Umsóknarfrestur er til og með 30. maí. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Gestsson, skólastjóri í síma: 822-1748 og á netfanginu This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it . Upplýsingar um Fellaskóla má sjá á heimasíðu hans fljotsdalsherad.is/fellaskoli Þessi auglýsing er birt hér til að uppfylla lög og reglur um auglýsingar á opinberum störfum.
Lausar leikskólakennarastöðurFljótsdalshérað ítrekar auglýsingu eftir leikskólakennurum við eftirtalda leikskóla: Leikskóladeild BrúarásskólaSkólastjóri Stefanía Malen Stefánsdóttir Leikskólinn TjarnarskógurLeikskólastjóri, Guðný Anna Þóreyjardóttir Umsóknarfrestur er til 21. maí 2013, framlengdur til 28.maí 2013. Nánari upplýsingar um stöðurnar veita viðkomandi leikskólastjórar og ber að skila umsóknum til þeirra.
Laus störf hjá Félagsþjónusta Fljótsdalshéraðs í sumarFélagsþjónusta Fljótsdalshéraðs óskar eftir að ráða starfsfólk í búsetuþjónustu í sumar – störfin felast í aðstoð við fatlað fólk á heimilum sínum s.s. við athafnir daglegs lífs, félagslega þátttöku og tómstundir. Um er að ræða vaktavinnu. Sveigjanleiki og færni í mannlegum samskiptum |