|
Einstaklingum með fötlun og aðstandendum þeirra stendur til boða öll almenn þjónusta sem veitt er hjá Félagsþjónustunni, á borð við félagslega ráðgjöf, félagslega heimaþjónustu, heimsendingu matar og húsaleigubætur. Að auki er fötluðum sem búa í þéttbýli Fljótsdalshéraðs boðið upp á akstursþjónustu á vegum sveitarfélagsins. Þjónustan stendur einnig öðrum hópum sem búa við skerta getu til boða sé hún ekki fullnýtt af fötluðum. Fatlaðir hafa rétt á liðveislu skv. lögum um málefni fatlaðra, til að njóta félagslífs og fyrirbyggja einangrun. Samvinna er við Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra á Austurlandi um þjónustu fatlaða.
|