Skip to content

Fljótsdalshérað

dot
sh-bg-13.jpg
Sorphirða Print E-mail

Í október 2009 tók gildi svo kallað þriggja tunnu sorphirðukerfi hjá Fljótsdalshéraði. Það felur í sér að lögð er áhersla á flokkun heimilissorps. Markmið sveitarfélagsins, í samvinnu við íbúana, er m.a. að draga úr urðun lífræns sorps um 65 % fyrir árið 2020, sem er í anda reglugerðar 737/2003 um meðhöndlun úrgangs, sem sett er með hliðsjón af tilskipun 1999/31/EB um urðun úrgangs. Þetta er einnig í samræmi við áherslur í Stefnu Fljótsdalshéraðs , þar sem segir: „Fráveitu- og úrgangsmál í sveitarfélaginu byggja á umhverfisvænum lausnum sem skipa því í fremstu röð á þessu sviði. Þjónusta sveitarfélagsins við íbúa og fyrirtæki miðar að því að þeim úrgangi sem myndast sé komið í endurnotkun og endurnýtingu um leið og áhersla er lögð á að dregið sé með skipulögðum hætti úr myndun úrgangs eins og unnt er.

Hér má nálgast samþykkt um meðhöndlun úrgangs á Fljótsdalshéraði

Hér má nálgast gjaldskrá fyir sorphirðu og sorpeyðingu á Fljótsdalshéraði

Með því að taka upp þriggja tunnu kerfi var verið að auðvelda íbúum að taka þátt í mótun
umhverfisvæns samfélags og að flokka sorp á sem þægilegastan hátt. Samstarf við íbúa er mjög mikilvægt og nauðsynlegt að þeir finni hjá sér þörf til að vera hluti af því verkefni að minnka sorp til urðunar og auka endurvinnslu.

Þriggja tunnu kerfið gerir ráð fyrir að í þéttbýli fái hvert heimili afhentar þrjár tunnur. Eina  fyrir almennt sorp, aðra fyrir flokkað sorp og þá þriðju fyrir lífrænt sorp. Flokkaða sorpið er allt flutt til endurvinnslu, lífræna sorpið er jarðgert en almenna sorpið er það eina sem er urðað. Í dreifbýli sveitarfélagsins fá íbúar eina tunnu fyrir endurvinnsluhráefni, eina undir almennt sorp og moltugerðarílát fyrir lífrænan úrgang.

Í Sorphirðuhandbókinni er að finna upplýsingar um sorphirðuþjónustuna s.s. flokkun sorpsins og  flokkunarílátin. Hér má finna sorphirðudagatal fyrir þéttbýli 2013 og sorphirðudagatal fyrir dreifbýli 2013

Hér má nálgast heimasíðu Flokkarans, varðandi flokkun sorps.

Hér eru upplýsingar um einfalda leið til að útbúa tunnuskýli.

Hér er hægt að nálgast upplýsingar um jarðgerðarílát

Hér er hægt að nálgast leiðbeiningar um jarðgerð

Flokkunartafla - Græna tunnan

Flokkunartafla - Brúna tunnan

Recyclables - Green bin

Food waste - Brown bin

Tablica segregacji _ Zielony pojemnik

Tablica segregacji - Brazowy pojemnik

Spurt og svarað – hér, á heimasíðu Íslenska gámafélagsins má finna svör við ýmsum spurningum varðandi flokkun sorps. Einnig má hafa samband við verkefnastjóra umhverfismála hjá Fljótsdalshéraði með því að senda honum tölvupóst hér.

Opnunartími móttökustöðvarinnar að Tjarnarási 9, Egilsstöðum, er eftirfarandi:
Virka daga frá kl. 9:00 til kl.17:00 og á laugardögum frá kl. 10:00 til 14:00. Lokað er á sunnudögum nema frá 1. maí fram til 1. september er stöðin opin á sunnudögum frá kl. 12:00 til  14:00.

Á móttökustöðinni er tekið við öllu sorpi sem íbúar þurfa að losa sig við. Þangað þarf að skila spilliefnum, garðaúrgangi o.fl. sem ekki má fara í heimilistunnurnar. Auk þess má þar losa sig við timbur, gler o.fl. sem annars á að setja í „gráu tunnuna" og er þ.a.l. urðað.

Móttaka á flöskum og dósum er opin mánudaga til föstudaga kl. 13 - 17.

Íslenska gámafélagið sér um sorphirðu í sveitarfélaginu samkvæmt samningi við Fljótsdalshérað.

Íslenska gámafélagið
sími móttökustöðvar er: 471 1111
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it

Sími Íslenska gámafélagsins í Reykjavík er: 577-5757
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
www.igf.is


Fyrirtæki sem þurfa á sorphirðuþjónustu að halda geta snúið sér til þeirra aðila sem hana veita, en það eru t.d. Íslenska gámafélagið, Dagsverk og Gámaþjónusta Austurlands - Sjónarás.

 Sorpurðun í landi Tjarnarlands:

Frummatsskýrsla - auglýsing

Frummatsskýrsla

 

 
facebook
Banner
Íbúagátt Fljótsdalshéraðs