Skip to content

Fljótsdalshérað

dot
sh-bg-13.jpg
Söfn Print E-mail

Í Safnahúsinu Laufskógum 1 á Egilsstöðum eru starfrækt þrjú söfn, Minjasafn Austurlands, Héraðsskjalasafn Austfirðinga og Bókasafn Héraðsbúa. Öll þessi söfn hafa auk reglubundinnar starfsemi boðið upp á sérsýningar og ýmiss konar kynningar og skemmtidagskrár, bæði hvert um sig á sínu sviði og jafnframt sameina söfnin í Safnahúsinu reglulega krafta sína og bjóða upp á áhugaverða dagskrárliði.

 

Minjasafn Austurlands

Á sýningum safnsins er hægt að skoða muni sem tengjast menningu, atvinnuháttum og daglegu lífi á Austurlandi frá upphafi safnahusidlandnáms til okkar daga. Þann 7. maí 2006 opnaði ný grunnsýning á Minjasafninu. Sýningin nefnist „Sveitin og þorpið“ en í henni er reynt að varpa ljósi á gamla íslenska sveitasamfélagið en einnig er sjónum beint að samfélagsþróun á Austurlandi um miðbik 20. aldar. Á grunnsýningunni gefur einnig að líta gripi sem fundist hafa við fornleifauppgreftri á Austurlandi. Sumir þeirra eru álitnir vera um eða yfir 1000 ára gamlir. Þessir gripir eru fengnir að láni frá Þjóðminjasafni Íslands samkvæmt samstarfssamning þess við Minjasafn Austurlands og munu þeir verða til sýnis á Minjasafninu fram á næsta ár.

Á sérsýningum safnsins eru rannsóknum þess gerð skil. Sumarið 2000 var opnuð sýningin Mörk heiðni og kristni, sem sýnir afrakstur fornleifarannsókna safnsins að Geirsstöðum í Hróarstungu og á Þórarinsstöðum í Seyðisfirði.

Á sumrin eru haldnir svokallaðir "þjóðháttardagar" einu sinni í viku. Á þeim er þjóðlegum arfi, s.s. handverki og verkhefðum gert hátt undir höfði. Gestum safnsins gefst þá færi á að reyna sig ýmis verk, t.d. ýsubeinaútskurð og útsaum. Dagskrá þjóháttadaganna er auglýst hvert sumar á heimasíðu safnsins.

Minjasafnið hefur og umsjón með Kjarvalshvammi í Hjaltastaðaþinghá, þar sem Kjarval bjó og málaði, og Geirsstöðum í Hróarstungu, þar sem getur að líta tilgátuhús; endurgerða kirkju frá upphafi kristni á Íslandi. Endurgerð kirkjunnar byggir á niðurstöðum fornleifarannsóknar á samnefndum stað. Áhugasamir geta fengið upplýsingar um þessa staði, auk fundarstaðs Þórisárkumlsins, í afgreiðslu safnsins áður en lagt er í skoðunarferð um þá.

Safnið býður upp á virka safnfræðslu og er tekið vel á móti hópum á öllum skólastigum. Safnstjóri hefur unnið með leikskólum, grunnskólum og framhaldsskólum að margvíslegum verkefnum sem tengja saman aðalnámskrá skólanna og viðfangsefni á safninu.

Á sumrin eru sýningar safnsins opnar alla daga vikunnar frá kl. 13-19. Yfir vetrartímann er safnið opið eftir samkomulagi.
Starfsfólk: Unnur Birna Karlsdóttir safnstjóri, Edda Björnsdóttir safnvörður og Beata Fabian safnvörður.  Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það <!-- document.write( '</' ); document.write( 'span>' ); //-->

Minjasafn Austurlands
Sími: 471 1412
Fax: 471 1452
Netfang: This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Veffang: www.minjasafn.is

 

Héraðsskjalasafn Austfirðinga

Héraðsskjalasafn Austfirðinga var stofnað 1976. Fyrstu 20 árin starfaði það í "Gömlu símstöðinni" að Kaupvangi 1 á Egilsstöðum en þann 17. apríl 1996 flutti það í Safnahúsið Laufskógum 1. Í Safnahúsinu eru auk Héraðsskjalasafnsins, Minjasafn Austurlands og Bókasafn Héraðsbúa. Forstöðumaður Héraðsskjalasafns Austfirðinga er Magnea Bára Stefánsdóttirr. Aðrir fastir starfsmenn safnsins eru Arndís Þorvaldsdóttir og Magnhildur Björnsdóttir. Arndís hefur auk starfa sinna fyrir skjalasafnið umsjón með Ljósmyndasafni Austurlands, sem er varðveitt hjá Héraðsskjalasafninu.

Héraðsskjalasafnið er byggðasamlag í eigu sveitarfélaganna í Múlasýslum og skipar hvert þeirra einn fulltrúa í fulltrúaráð safnsins. Héraðsskjalasafnið er sjálfstæð skjalavörslustofnun sem lýtur faglegu eftirliti Þjóðskjalasafns Íslands. Safnið á að varðveita skjöl og bækur sveitarfélaga, stofnana og félaga sem tengjast þeim og er þessum aðilum skylt samkvæmt lögum að afhenda skjöl til héraðsskjalasafnsins.

Í safninu eru lesvélar fyrir örfilmur, en á filmum eru til kirkjubækur úr Múla-, Skaftafells- og Þingeyjarsýslum. Í safninu eru margvísleg gögn sem tengjast austfirskri sögu. Langstærstur hluti þeirra er varðveittur á pappír en einnig er í safninu nokkuð af hljóð- og myndupptökum, þar má t.d. nefna myndefni frá Austfirska sjónvarpsfélaginu. Mestur hluti hljóð- og myndefnisins hefur verið yfirfærður á stafrænt form en er þó aðeins aðgengilegur í safninu sjálfu. Auk opinberra skjala í skjalasafninu er þar líka að finna mikið magn einkaskjala sem safninu hafa verið afhent. Sem dæmi má nefna bréfasöfn margra þeirra sem setið hafa á Alþingi fyrir Austurland, þar má nefna Vilhjálm Hjálmarsson, Jónas Pétursson og Guttorm Vigfússon.

Í Héraðsskjalasafninu er veglegt bóka- og tímaritasafn sem að stofni til er gjöf hjónanna Halldórs Ásgrímssonar alþingismanns og konu hans Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur, en gjöfin var afhent á stofnári safnsins. Þá hafa bókasafninu borist margar bókagjafir á starfstíma sínum. Bóka- og tímaritasafnið hefur þó aukist mest af innkaupum til þess sem gerð hafa verið af árlegu rekstrarfé stofnunarinnar. Við innkaup til safnsins er lögð áhersla á fræðilegt efni sem og á austfirska útgáfu. Heimilt er að lána bækur úr bókasafninu en þó er í því efni sem ekki er til útláns.

Héraðsskjalasafnið heldur úti vefsíðu (www.heraust.is) sem hefur að geyma ýmsar upplýsingar um safnið og starfsemi þess. Afgreiðslutími safnsins er frá kl. 12:00-16:00 frá mánudegi til fimmtudags.

Héraðsskjalasafn Austfirðinga
Sími: 471 1417

netfang: This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
netfang: This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
netfang: This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
netfang: This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
veffangið www.heraust.is

 

Bókasafn Héraðsbúa

Bókasafn Héraðsbúa varð til við samruna nokkurra lestrarfélaga á Héraði í vetrarbyrjun árið 1956. Lengi vel var safnið á flakki milli húsa á Egilsstöðum, eða allt til þess að því var komið fyrir í kjallaraherbergjum í Héraðsheimilinu Valaskjálf árið 1967. Hrakningum safnsins var þó langt í frá lokið og á árunum 1976 til 1995 var safnið enn á flakki, fyrst í kjallara Búnaðarbankans, þá í geymsluherbergjum í Menntaskólanum, síðan að Tjarnarbraut 19. Í ársbyrjun 1995 er safnið síðan flutt í eigið húsnæði á efstu hæð Safnahússins. Núverandi forstöðumaður er Jóhanna Hafliðadóttir en einnig starfar á safninu Ingibjörg Sveinsdóttir.

Bókakostur safnsins er um nítján þúsund bindi, en auk þess er á safninu ofurlítill vísir að myndbandasafni og hljóðbókasafni. Safnið er tölvuvætt og tengt landskerfi bókasafna, Gegni. Gestir safnsins hafa aðgang að tölvu sem mikið er notuð, ekki síst af ferðamönnum.
Bókasafn Héraðsbúa er opið alla virka daga frá kl. 14:00 - 19:00.

Bókasafn Héraðsbúa
sími: 4 700 745

netfang: This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it

 

 

 
facebook
Banner
Íbúagátt Fljótsdalshéraðs