|
Á Fljótsdalshéraði eru starfræktir 4 heildstæðir grunnskólar, Egilsstaðaskóli, Hallormsstaðaskóli, Fellaskóli og Brúarásskóli. Skólarnir eru um margt ólíkir og íbúar eiga sveigjanlegt val á skóla fyrir börn sín. Börn sem búa í skólahverfi hvers skóla hafa þó ávallt forgang í sinn heimaskóla. Skólaárið 2012-2013 stunda 339 nemendur nám í Egilsstaðaskóla, sem er stærsti vinnustaður sveitarfélagsins. Í Fellaskóla eru 97 nemendur í 1. - 10. bekk, 41 nemandi í Hallormsstaðaskóla og 35 í Brúarásskóla. Egilsstaðaskóli og Fellaskóli eru í þéttbýliskjörnunum sitt hvorum megin við Lagarfljót, hinir skólarnir eru í byggðakjörnum á Hallormsstað og Brúarási. Allir skólarnir eru að fullu einsetnir, og eru starfræktir sem heimanaksturs- eða heimangönguskólar, þar sem allir nemendur fara heim að skóladegi loknum.
Starfsemi grunnskólanna heyrir undir fræðslunefnd.
Hjá sveitarfélaginu starfar fræðslufulltrúi sem sér um málefni grunnskólanna. Skólaskrifstofa Austurlands annast sérfræðiþjónustu og ráðgjöf við grunnskólana í sveitarfélaginu.
Héraðsforeldrar er nafn á svæðisráði foreldrafélaga í grunnskólum á Fljótsdalshéraði. Hér má nálgast upplýsingar um Héraðsforeldra.
Brúarásskóli
Brúarásskóli var stofnsettur í núverandi húsnæði haustið 1979. Haustið 2008 voru leikskólinn í Brúarási og grunnskólinn sameinaðir undir eina stjórn og skólinn er skipulagður sem heildstæður skóli fyrir börn á leik- og grunnskólaaldri á norðanverðu Fljótsdalshéraði. Brúarásskóli er fámennur dreifbýlisskóli en nemendur hans eru samtals 45 skólaárið 2012-2013. Samkennsla árganga er við skólann, en fjöldi námshópa ræðst af aðstæðum og samsetningu nemendahópsins á hverjum tíma.
Megináherslan í starfi skólans er að huga grannt að þörfum hvers og eins, hlúa að nemendum, auka sjálfstraust þeirra og styðja þá til þroska eins vel og unnt er í smærri bekkjardeildum. Mjög góð íþróttaaðstaða er í húsnæði skólans og hreyfing gegnir miklu hlutverki í skólastarfinu.Síðustu ár hefur mikil áhersla verið lögð á útikennslu og nýsköpun. Útikennsluvika er í hverjum mánuði og nýsköpun á stundaskrá nemenda. Skólinn er grænfánaskóli og einn þáttur í umhverfisstarfi skólans byggir á því að við skólann hefur verið reist dýrahús sem hýsir kanínur, naggrísi og hænur. Þangað fer mestur hluti af lífrænum úrgangi skólans auk þess sem dýrahúsið gegnir margvíslegu hlutverki í kennslu.
Náið samstarf er við tónlistarskólann sem starfræktur er í húsnæði skólans og nemendur sækja tónlistarnám á skólatíma.
Á vorin er hefð fyrir sérstökum vorverkum sem tengjast ræktun og umhverfisfræðslu og því að brjóta upp hefðbundið skólastarf.
Skólastjóri er Stefanía Malen Stefánsdóttir.
Brúarásskóli, Brúarási sími: 470-0625 Fax:470-0799 Netfang:
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Veffang: fljotsdalsherad.is/bruarasskoli
Fellaskóli
Fellaskóli er heildstæður grunnskóli með 1.-10. bekk og hefur starfað frá árinu 1987. Hann hefur fyrst og fremst þjónað því svæði á Fljótsdalshéraði sem áður tilheyrði Fellahreppi og búa langflestir nemendanna í Fellabæ. Skólinn hefur verið einsetinn frá því árið 2001 þegar nýbygging við skólann var tekin í notkun. Um 100 nemendur eru að jafnaði í Fellaskóla og samkennsla er að hluta til í flestum árgöngum. Alls starfa tæplega 20 manns við skólann að skólaliðum og bílstjórum meðtöldum. Í Fellaskóla er reynt að stuðla að sjálfsaga nemenda bæði hvað snertir nám og hegðun. Ekkert punktakerfi er í skólanum en reynt að fylgjast vel með gengi hvers nemanda. Skólastjóri er Sverrir Gestsson Aðstoðarskólastjóri er Jón Gunnar Axelsson
Fellaskóli Einhleypingi 2, Fellabæ sími: 470-0640 Fax: 471-2168 Netfang:
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Veffang: fljotsdalsherad.is/fellaskoli
Egilsstaðaskóli
Egilsstaðaskóli er heildstæður grunnskóli sem fyrst og fremst þjónar nemendum sem búa á Egilsstöðum og í dreifbýlinu sem áður tilheyrði Eiða- og Hjaltastaðaþinghá. Alls eru nú í skólanum um 340 nemendur og skiptast allir árgangar í tvær bekkjardeildir. Allir nemendur hefja skóla á sama tíma eða kl. 9.00 árdegis, en hluti nemenda kemur með skólabílnum úr dreifbýlinu. Aukinn nemendafjöldi og tvískipting allra árganga kallaði á aðgerðir í húsnæðismálum og haustið 2010 var langþráðum áfanga náð, þegar rúmgóð nýbygging var tekin í notkun að fullu og um leið var lokið umfangsmiklum endurbótum á eldra húsnæði skólans.
Skólastjóri er Sigurlaug Jónasdóttir. Aðstoðarskólastjóri er Ruth Magnúsdóttir.
Egilsstaðaskóli Tjarnarlönd 11, Egilsstöðum sími: 470-0605 Fax:470-0741 Netfang:
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Veffang: fljotsdalsdalsherad.is/egilsstadaskoli
Hallormsstaðaskóli
Hallormsstaðaskóli er rekinn í samstarfi við Fljótsdalshrepp skv. sérstökum samstarfssamningi. Haustið 2009 voru leik- og grunnskóli sameinaðir undir eina yfirstjórn sem gefur góð tækifæri til náins samstarfs skólastiganna. Samkennsla árganga er mikil við skólann og þeir sem að skólanum standa eru sammála um að samkennsla árganga hafi fleiri kosti í för með sér en ókosti, enda er hún oftar en ekki skipulögð sem einstaklingskennsla, þar sem hverjum nemenda er kennt á hans forsendum. Skólinn er einsetinn og við hann er rekið mötuneyti og auk þess er íþróttahús og sundlaug á staðnum. Sundkennsla fer fram í námsskeiðsformi haust og vor. Tónlistarskóladeild frá Tónlistarskólanum á Egilsstöðum er starfrækt við skólann. Mikil þátttaka er í starfi tónlistardeildarinnar og yfirleitt stundar a.m.k. helmingur nemenda skólans einkatíma í hljóðfæraleik og söng. Í skólanum er starfrækt svokölluð lengd viðvera fyrir nemendur í yngstu bekkjum eftir hádegi tvo daga í viku. Krakkarnir völdu sjálf nafn á lengdu viðveruna og kalla hana að sjálfsögðu "Orkuverið".
Skólastjóri er Íris Dóróthea Randversdóttir
Hallormsstaðaskóli, Hallormsstað sími: 470-0630 Fax 471-2197 Netfang:
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Veffang: fljotsdalsherad.is/hallormsstadaskoli
|