Skip to content

Fljótsdalshérað

dot
sh-bg-06.jpg
Leikskólar Fljótsdalshéraðs Print E-mail

Leikskólinn er fyrsta skólastigið í íslensku skólakerfi og annast að ósk foreldra uppeldi, umönnun og menntun barna á leikskólaaldri, sbr. lög um leikskóla frá 1. júlí 2008.

Fljótsdalshérað starfrækir 2 leikskóla í þéttbýlinu, 1 á Egilsstöðum og 1 í Fellabæ. 
Í byggðakjörnunum á Hallormsstað og Brúarási eru leik- og grunnskólar sameinaðir undir eina stjórn. Leikskólarnir eru um margt ólíkir og hefur hver leikskóli markað sér sérstöðu með áherslu á ákveðna stefnu eða þætti í starfinu.

Starfsemi leikskólanna heyrir undir fræðslunefnd.

Hjá Fljótsdalshéraði starfar fræðslufulltrúi sem er yfirmaður fræðslumála í sveitarfélaginu. Þar starfar einnig leikskóla- og sérkennslufulltrúi sem hefur yfirumsjón og eftirlit með faglegu starfi og sérkennslu í leikskólunum.

Skólaskrifstofa Austurlands annast sérfræðiþjónustu og ráðgjöf við leikskóla í sveitarfélaginu.

Innritun í leikskóla:
Sótt er um leikskóla rafrænt á heimasíðu sveitarfélagsins www.fljotsdalsherad.is >íbúagátt. Umsóknareyðublöð er einnig að finna á heimasíðu sveitarfélagsins undir umsóknir.

Leikskólarýmum er úthlutað eftir aldri barna.  Barn þarf að eiga lögheimili í sveitarfélaginu þegar leikskólaganga hefst en heimilt er að vera á umsóknarlista þó lögheimili sé annars staðar.
Víkja má frá meginreglum um inntöku nýrra nemenda í leikskóla ef sérstakar aðstæður krefjast þess.

Opna pdf skjal  Reglur leikskóla Fljótsdalshéraðs

Opna pdf skjal Gjaldskrá fyrir leikskólana Hádegishöfða, Skógarsel og Tjarnarskóg   Gildir frá 1.janúar 2013

Opna PDF skjal Gjaldskrá leikskólans á Brúarási       Gildir frá 1.janúar 2013

Opna PDF skjalÁrsskýrsla um faglegt starf í leikskólum Fljótsdalshéraðs skólaárið 2009 - 2010

Hér er samþykkt um opnunartíma leikskóla frá og með 1. nóvember 2011

 

Sumarlokun leikskólanna 2013

Tjarnarskógur og Hádegishöfði loka f.o.m. 15.júlí t.o.m. 9.ágúst

 

Hér að neðan eru almennar upplýsingar um hvern leikskóla.

 


Brúarásskóli

Haustið 2008 voru leikskólinn í Brúarási og grunnskólinn sameinaðir undir eina stjórn. Skólinn er skipulagður sem heildstæður skóli fyrir börn á leik- og grunnskólaaldri á norðanverðu Fljótsdalshéraði. Leikskólatíminn er mjög sveigjanlegur eða allt frá því að nemendur komi einu sinni í viku í það að vera alla daga vikunnar. Skólatími leikskólans tekur mið af skóladagatali grunnskólans þar sem skólabílar eru samnýttir fyrir nemendur ásamt almenningssamgöngum.

bruarasskoliMegináhersla í starfi leikskólans er að huga grannt að þörfum hvers og eins, hlúa að nemendum, auka sjálftraust þeirra og styðja þá til þroska eins vel og unnt er. Brúarásskóli flaggar grænfána Landverndar og er það einn þáttur í umhverfismennt skólans.

 

Skólastjóri er Stefanía Malen Stefánsdóttir
Deildarstjóri leikskóladeildar er Ása Ásmundsdóttir

Brúarásskóli, Brúarási
Sími: 4 700 625, 4 700 678
Fax: 470 0799
Netfang: This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it Veffang: fljotsdalsherad.is/bruarasskoli

 

 


 

Leikskólinn Hádegishöfði

Hádegishöfði tveggja deilda leikskóli staðsettur við Lagarfell 15 í Fellabæ.  Leikskólinn er mjög vel staðsettur með grunnskólann, tónlistarskólann og íþróttaaðstöðu í næsta nágrenni.

Hádegishöfði starfar í anda hugmyndafræði Reggio Emilia. Lögð er áhersla á lýðræði í hadegishofdivinnubrögðum, takmarkalaust traust auk virðingar fyrir nemendum og getu þeirra til að afla sér þekkingar og reynslu á eigin forsendum. Starfið byggir frekar á hlustun kennarans en að hann sé aðal fræðarinn. Lögð er meiri áhersla á að aðstoða nemendur í að spyrja sig sjálfa góðra spurninga en að svara spurningum.
Megináherslur í daglegu starfi eru að efla sjálfstæði, gleði og sköpun nemenda sem og virðingu þeirra fyrir sjálfum sér og öðrum. Hádegishöfði flaggar grænfána Landverndar og er verkefnið hluti af umhverfismennt skólans.

 

Leikskólastjóri er Guðmunda Vala Jónasdóttir
Aðstoðarleikskólastjóri er Margrét Björk Björgvinsdóttir

 

Leikskólinn Hádegishöfði
Lagarfelli15, Fellabæ
Sími: 4 700 670
Netfang: This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Veffang: www.leikskolinn.is/hadegishofdi/

 


 Leikskólinn Tjarnarskógur

 

skogarlondTjarnarskógur er átta deilda leikskóli sem starfar á tveimur stöðum á Egilsstöðum, Skógarlandi við Skógarlönd 5 og Tjarnarlandi við Tjarnarlönd. 

Í göngufæri frá báðum stöðum eru skemmtileg svæði sem mikið eru notuð til útiveru, svo sem Selskógur, Tjarnargarður, Bjarnadalur, Krummaklettur og Vilhjálmsvöllur. Á Skógarlandi eru 1 til 4 ára gömul börn og á Tjarnarlandi eru 5 ára börnin og sum árin fær hluti 4 ára barnanna að fylgja þeim.Tjarnarskógur varð til við sameiningu Skógarlands og Tjarnarlands í upphafi skólaársins 2012-2013 en þangað til störfuðu þeir sem sjálfstæðir leikskólar. Sameiningin gefur tilefni til að skoða og móta stefnu skólans úr því besta sem einkennt hefur skólastarfið í þeim tveimur skólum sem mynda nú Tjarnarskóg

 

tjarnarland

Leikskólastjóri er Guðný Anna Þóreyjardóttir
Aðstoðarleikskólastjóri er Hera Ármannsdóttir

 

LeikskólinnTjarnarskógur
Skógarlöndum 5 og Tjarnarlöndum 10-12
Sími: 4 700 660
Netfang:
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Veffang:
www.leikskolinn.is/tjarnarskogur/

 

 


 

Leikskólinn Skógarsel

Haustið 2009 voru leikskólinn Skógarsel og Hallormsstaðaskóli sameinaðir undir eina stjórn.  Skólinn er skipulagður sem heildstæður skóli fyrir börn á leik- og grunnskólaaldri.  Leikskólatíminn er mjög sveigjanlegur eða allt frá því að nemendur komi fáa daga í viku í það að vera alla daga vikunnar.  
Leikskóladeildin er staðsett í húsnæði grunnskólans í hjarta Hallormsstaðaskógar. Skógurinn er hluti af náms- og leiksvæði skólans og þar hafa nemendur og kennarar útbúið spennandi útikennslustofu. Hallormsstaðaskóli er grænfánaskóli Landverndar.   hallormsstadaskoli
Skógarsel starfar í anda hugmyndafræði Reggio Emilia. Lögð er áhersla á að efla lífsgleði og forvitni nemenda, að þeir læri að bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum, náttúrunni og öllu því sem lifir. Megináherslur í daglegu starfi eru leikur, gleði, sköpun, hreyfing og útivera. 

Skólastjóri er Íris Dóróthea Randversdóttir
Deildarstjóri leikskóladeildar er Dísa María Egilsdóttir

Leikskóladeildin Skógarsel
Hallormsstað
Sími: 4 700 675
Netfang: This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Veffang: www.leikskolinn.is/skogarsel/

 


 
facebook
Banner
Íbúagátt Fljótsdalshéraðs