Welcome to the website of Touring club of Fljótsdaldshérað
Margt áhugavert í júlí hjá Ferðafélagi Fljótsdalshéraðs
Það er margt spennandi framundan hjá FFF í júlí.
11. júlí n.k. er sunnudagsgangan í Stóruð eina af Perlum Fljótsdalshéraðs
13,-16, júlí verða Heiðarbýlin í Jökulsdalsheiðinni húsvituð í fylgd Páls Pálssonar frá Aðalból, nánar í ferðir.
Ath. þó að einnig hægt er að ganga einn, tvo eða þrjá daga af þessarri ferð
17.-18. júlí er spennandi helgarferð á Snæfell í samvinnu við wildboys þá Skúla og Óskar.
Ath. engin sunnudagsganga 18.júlí
25. júlí er ganga á Hallbjarnastaðartind í fylgd Kristins Þorsteinssonar.
Gönguleikirnir okkar vinsælu á fullri ferð. Kaupið ykkur stimpilkort á Upplýsingamiðstöðinni á Egilsstöðum eða í ferðum Ferðafélags Fljótsdalshéraðs.
Margt spennandi framundan
Það er ýmislegt skemmtilegt á döfinn hjá Ferðafélagi Fljótsdalshéraðs nú í júní.
Sunnudaginn 13. júní verður gengið á milli þriggja heiðarbýla í Hauksstaðaheiðinni í fylgd Þórunnar Egilsdóttur og Baldurs Hallgrímssonar, sjá nánar í viðburðum.
Föstudaginn 18. júní er árviss sólstöðuganga (fjölskylduferð) FFF. Að þessu sinni verður gengið fyrir Tangarsporð á Vopnafirði í fylgd Ólafs B. Valgeirssonar, sjá nánar í ferðir.
Svo er það garpaferðin okkar, nýung í samvinnu við "wildboys" þá Óskar og Skúla. Gengnir verð 30 km á marga fjallatoppa þar á meðal Sandfell, Botnatind, Kistufell og Hött og endað í kjötsúpu á Stóra-Sandfelli, sjá nánar í ferðir.
Sunnudagsgöngurnar okkar 20. og 27. júní verða að venju, sjá nánar í viðburðir.
Loks eru spennandi vinnuferðir í Kverkfjöll 18.-20 júní og í skálana okkar á Víknaslóðum 25.-27. júní, sjá nánar frétt hér neðar á síðunni.
Vinnuferðir í skála FFF
Nú styttist opnunarferðirnar í skálana okkar. Vinnuferð í Sigurðarskála er helgina 18. til 20. júní og í skálana á Víknaslóðum helgina á eftir eða 25. til 27. júní. Sjálfboðaliðar velkomnir. Hvers vegna ekki að drífa sig og eiga skemmtilega helgi í fallegu umhverfi. Frítt fæði og ferðir. Endilega hafið samband í
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
síma 863 5813
Stjórnin.
Myndasýning - Perú
Ferðafélag Fljótsdalshéraðs verður með myndasýningu í Olísskálanum í Fellabæ fimmtudaginn 13. maí 2010 kl. 16. Þar munu nokkrir félagar kynna ævintýraferð sem þeir fóru til Perú í mars og apríl sl. í máli og myndum. Allir velkomnir.
Aðalfundur Ferðafélags Fljótsdalshéraðs
Aðalfundur Ferðafélags Fljótsdalshéraðs verður haldinn sunnudaginn 2. maí n.k. kl. 16 í húsnæði Olís í Fellabæ.
ATH RÖNG T'IMASETNING Í DAGSKRÁNNI
Venjuleg aðalfundarstörf.
Félagar eru hvattir til að mæta svo og fólk sem hefur áhuga á að ganga í félagið. Margt spennandi framundan.
Stjórnin
More Articles...
Page 2 of 9
Next tours
September 10, 2010 (17:00)
Ákveðið hefur verið að bjóða upp á vinnu- og fjölskylduferð í Kverkfjöll frá föstudegi til sunnudags.
Áhugasamir skrái sig í síma 863 5813 eða í ferdafelag@egilsstadir.is
September 11, 2010 (8:00)
Ekið til Borgarfjarðar eystri. Gengið frá Jökulsá upp á hátindinn og gengið niður að dyrum. Gengin sama leið til baka
Fararstjórar Skúli Júlíusson og Óskar Ingólfsson www.wildboys.123.is
Mæting við gamla tjaldstæðið á...





