Thursday, September 09, 2010
Icelandic(IS)
   
Text Size
Please update your Flash Player to view content.

Welcome to the website of Touring club of Fljótsdaldshérað

Perlustimpill við Hengifoss

There are no translations available.

Kominn nýr stimpill við Hengifoss.

Stimpillinn hefur horfið úr stauknum við Hengifoss og er búið að panta nýjan.  Fari einhverjir fýluferð endilega hafið samband í 863 5813 eða í This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it

Minnum á að Perluleikurinn er í fullu gangi og fólk á að koma með kortin að Kaupvangi 2 (INNI Fasteignasala) þegar þau eru orðin full.

 

Heiðarbýlin í göngufæri

There are no translations available.

Nú í vikunni kom út bæklingur um "Heiðarbýlin í göngufæri" sem er gönguleikur Ferðafélags Fljótsdalshéraðs, sveitarfélagsins Fljótsdalshéraðs og Kaupvangs menningar- og fræðaseturs Vopnfirðinga.  Bæklingurinn var borinn út á öll heimili á Fljótsdalshéraði og Vopnafirði.
Staukar eru komnir á flest býlin, en upplýsingar um framgang verkefnisins eru settar inn jafnóðum hér á síðuna undir "Heiðarbýlin".
Stimpilkortin eru seld á Upplýsingamiðstöðvunum á Egilsstöðum og Vopnafirði og einnig í Sænautaseli.
   

Skálabygging í Loðmundarfirði

There are no translations available.

Fresta þarf vinnuhelginni í Loðmundarfirði um eina viku.  Skálinn verður reistur helgina 10. - 12. júlí.
Vonumst til að sjá sem flesta sem eru til í að eyða helgi í yndislegu umhverfi með skemmtilegu fólki.
Stjórnin
   

Skálabygging í Loðmundarfirði

There are no translations available.

Oft er þörf en nú er nauðsyn.  Sjálfboðaliða vantar við skálabyggingu helgina 3.-5. júlí í Loðmundarfjörð.  Gist í Húsavíkurskála eða ef fólk vill þá er hægt að gista í tjaldi í Loðmundarfirði.  Frítt fæði.  Þeir sem ekki komast á eigin bílum verður útvegað far.  Fært er í Loðmundarfjörð á öllum fjórhjóladrifsbílum. 
Farið frá Upplýsingamiðstöðinni kl. 20 þann 3. júlí.  Komið til baka kl.19 þann 5. júlí.
Upplýsingar í símum 893 2858 Þórhallur, 894 2026 Þórir eða 867 4390 Jón Hávarður.

Er ekki upplagt að eyða fyrstu helginni í júli í yndislegu umhverfi með skemmtilegu fólki?

 

   

Spennandi Ganga á Gunnólfsvíkurfjall

There are no translations available.

Við höfum verið beðin um að hjálpa við að auglýsa göngu á Gunnólfsvíkurfjall

Föstudaginn 17. júlí nk. verður gengið á Gunnólfsvíkurfjall á Langanesi. Safnast verður saman við veginn á fjallið austarlega á Brekknaheiði kl. 16:00. Tveimur tímum seinna eða kl. 18:00 mun fróður maður segja fólki frá því sem fyrir augu ber uppi á fjallinu.
Gunnólfsvíkurfjall er einkar tignarlegt þar sem það rís beint úr sjó upp í 719 m hæð og þaðan er ægifagurt útsýni. Í góðu skyggni sést þaðan allt suður til Herðubreiðar og Dyngjufjalla.

Á fjallinu er ratsjárstöð. Vegurinn upp á Gunnólfsvíkurfjall er alla jafna lokaður almenningi en þennan dag verður hann opinn frá 16:00 – 20:00 svo þarna gefst gott tækifæri til að komast upp á þetta glæsilega fjall.

Það er Ferðafélagið Norðuslóð sem stendur fyrir göngunni. Nánari upplýsingar hjá umsjónarmönnum úr göngunefnd Norðurslóðar, Ástu Laufeyju Þórarinsdóttur s. 860-7738 og Hrafngerði Elíasdóttur s. 893-3608.

   

Page 5 of 9

Banner

Next tours

Vinnu- og fjölskylduferð í Kverkfjöll
September 10, 2010 (17:00)

Ákveðið hefur verið að bjóða upp á vinnu- og fjölskylduferð í Kverkfjöll frá föstudegi til sunnudags.
Áhugasamir skrái sig í síma 863 5813 eða í ferdafelag@egilsstadir.is


Dyrfjöll - ytri tindur (1136)
September 11, 2010 (8:00)

Ekið til Borgarfjarðar eystri.  Gengið frá Jökulsá upp á hátindinn og gengið niður að dyrum. Gengin sama leið til baka
Fararstjórar Skúli Júlíusson og Óskar Ingólfsson www.wildboys.123.is
Mæting við gamla tjaldstæðið á...


Calendar

September 2010 October 2010
Su Mo Tu We Th Fr Sa
1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30