Welcome to the website of Touring club of Fljótsdaldshérað
Margt spennandi í september
4.-5. september er helgarferð í Sönhofsdal og á Brúaröræfi í fylgd Vernharðs Vilhjálmssonar. Gist í kofa og í tjöldum í Grágæsadal
11.-12. september er lokunarhelgi í Kverkfjöllum.
11. september gengið á Ytri-Tind Dyrfjalla í fylgd wildboys. Ein af flottari fjallgöngum á Austurlandi.
12. september gengið á Múlann í Fljótsdal
19. september gengið frá Njarðvík út á ystu nöf í fylgd Elvars Hjaltasonar:
26. september gengið um Fossárdal í Berufirði í fylgd heimamanna.
Nánar um þessar ferðir í viðburðadagatali.
Vinnuferð í Breiðuvík
Ferðafélag Fljótsdalshéraðs óskar eftir sjálfboðaliðum í vinnuferð í Breiðuvík 27.-29. ágúst n.k.
Sameinast verður í bíla en lagður verður til matur fyrir sjálfboðaliða.
Vinsamlegast skráið ykkur í síma 863 5813 eða sendið póst á This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it fyrir kl. 16 fimmtudaginn 26. ágúst n.k.
Ormsteiti dregið úr gönguleikjum FFF
Dregið var í gönguleikjum Ferðafélags Fljótsdalshéraðs í dag.
Í Sænautaseli var dregið í "Heiðarbýli í göngufæri"
Eftirtaldir hlutu vinninga:
Barnavinningar:
1. Karfa full af alls konar leikföngum og nammi gefin af Samkaupum: Halla Sóllilja Björnsdóttir
2. Máltíð í grilli kr. 3.000 gefið af N1: Irma Gná Jakobsdóttir
3. Krikkettsett gefið af versluninni Kauptúni, Vopnafirði: Brynhildur Kristjánsdóttir
Aðrir vinningar:
1. Lappaveisla í Sænautaseli: Ingólfur B. Arason
2. Súpa í Kaupvangskaffi á Vopnafirði fyrir 4: Ragnheiður Kristiansen
3. Gisting í skála FFF í tvær nætur fyrir fjölskylduna: Dagný Pálsdóttir
4. 10.000 kr. gefnar af Fasteignasölunni INNI: Adam Einar Hildarson
5. 15.000 kr. gjafabréf í Skógum: Rósa Björk Magnúsdóttir.
6. 30.000 kr. gjafabréf í Rammagerðinni gefið af Fljótsdalshéraði: Þorvaldur P. Hjarðar
Síðan var dregið úr Perluleiknum á tónleikum í Hallormsstaðaskógi.
1. Sameiginleg ferð FFF og Ferðafélags Fjarðarmanna, Mjóifjörður/Seyðisfjörður 28.ágúst n.k.: Helga Gunnlaugsdóttir
2. Gisting í skála FFF í tvær nætur fyrir fjölskylduna: Þorgerður Guðmundsdóttir
3. Gjafabréf í Húsasmiðjunni kr. 5.000: Ingileif Andrésdóttir
4. Askja light flíspeysa að verðmæti um 20.000 gefin af 66°norður: Þóra Vilbergsdóttir
5. 30.000 kr. gjafabréf í Skógum gefið af Fljótsdalshreppi.
Engin börn undir 12 ára aldrei skiluðu að þessu sinni inn Perlukortum, því miður.
Ákveðið var að draga samt út barnavinningana, því allir þekkja jú einhver börn.
1. Karfa full af alls konar leikföngum og nammi, gefið af Samkaupum: Elísabet Ósk Sigurðardóttir
2. Máltíð í grilli kr. 5.000 gefið af N1: Hjördís Hilmarsdóttir
Við þökkum öllum sem gáfu vinninga og einnig þeim sem tóku þátt í þessu með okkur og vonumst eftir enn meiri þátttöku að ári.
Ormsteiti
Ferðafélag Fljótsdalshéraðs er í samvinnu við Ormsteiti með göngur og viðburði.
Sunnudaginn 15. ágúst er árviss ganga sem endar á tónleikunum í Hallormsstaðaskógi. Að þessu sinni verður gengið yfir Hallormsstaðaháls í fylgd Braga Björnssonar. Á tónleiknum verður síðan dregið úr "Perluleiknum".
Mæting í þessa göngu er við gamla tjaldstæðið kl 10 þar sem sameinast er í bíla.
Sunnudaginn 15. ágúst kl. 12 er einnig dregið úr "Heiðarbýlaleiknum" á Timburmannamorgni Ormsteitis í Sænautaseli
Sunnudaginn 22. ágúst kl. 10 er gönguferð um Ranaskóg í fylgd Hjartar Kjerúlf. Mæting við Ranaskóg.
Perlu og Heiðarbýla stimpilkort
Nú styttist í úrdrátt í gönguleikjunum okkar Perlur Fljótsdalshéraðs og Heiðarbýli í göngufæri. Við kvetjum fólk til að klára kortin og skila þeim í síðasta lagi föstudaginn 13. ágúst n.k. Perlukortunum skal skilað til Hjördísar hjá INNI Fasteignasölu, Kaupvangi 2, Egilsstöðum. Heiðarbýlakortunum má skila í Sænautasel, í Kaupvang á Vopnafirði og til Hjördísar hjá INNI
Dregið verður í Heiðarbýlaleiknum á Timburmannamorgni Ormsteitis í Sænautaseli sunnudagsmorguninn 15. ágúst.
Dregið verður í Perluleiknum á tónleikum í Skóginum á Hallormsstaðadegi Ormsteitis sunnudaginn 15. ágúst.
Fullt af góðum vinningum.
More Articles...
Page 1 of 9
Next tours
September 10, 2010 (17:00)
Ákveðið hefur verið að bjóða upp á vinnu- og fjölskylduferð í Kverkfjöll frá föstudegi til sunnudags.
Áhugasamir skrái sig í síma 863 5813 eða í ferdafelag@egilsstadir.is
September 11, 2010 (8:00)
Ekið til Borgarfjarðar eystri. Gengið frá Jökulsá upp á hátindinn og gengið niður að dyrum. Gengin sama leið til baka
Fararstjórar Skúli Júlíusson og Óskar Ingólfsson www.wildboys.123.is
Mæting við gamla tjaldstæðið á...





