|
Félagsþjónusta Fljótsdalshéraðs |
|
|
|
Félagsþjónusta Fljótsdalshéraðs heyrir undir Félagsmálanefnd Fljótsdalshéraðs, Fljótsdalshrepps, Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Vopnafjarðarhrepps og Seyðisfjarðarkaupstaðar.
Meginmarkmið þjónustu:
- Félagsþjónusta í sveitarfélaginu skal stuðla að auknum lífsgæðum og velferð íbúa svæðisins.
- Þjónustan skal vera sveigjanleg og miðast við þörf.
- Við framkvæmd þjónustunnar skal þess gætt að hvetja einstaklinginn til sjálfsábyrgðar, virða sjálfsákvörðunarrétt hans og styrkja hann til sjálfshjálpar.
- Með aukinni áherslu á forvarnir skal stefnt að því að draga úr þörf fyrir sértæk úrræði.
- Stuðla skal að því að skapa börnum og ungmennum viðunandi uppeldisskilyrði og styrkja fjölskyldur í uppeldishlutverki þeirra.
- Einstaklingum sé gert kleift, svo lengi sem verða má, að búa í heimahúsum með því að veita sveigjanlega heimaþjónustu.
Aðsetur: Lyngás 12, 700 Egilsstöðum Sími: 470 0705 Fax: 470 0701
Opnunartímar: 9.00-16.00 alla virka daga. Tímapantanir fara fram í gegnum afgreiðslu félagsþjónustunnar.
|