| Vordagar hjá 1. bekk |
|
|
|
|
Á vordögum höfum við verið að kynna okkur nærumhverfið.
Á þriðjudaginn skoðuðum við umhverfi skólans með stækkunargleri og sáum margt skemmtilegt. Hlutir sem við sjáum daglega geta fengið aðra sýn í nærmynd. Eftir hádegið gengum við upp að Hringsjá og fengum æðislegt veður og frábært útsýni. Þar borðuðum við nestið okkar og fengum að leika okkur. Miðvikudaginn byrjuðum við á gönguferð í Egilsstaðavík með vinabekk okkar. Þar grilluðum við brauðorma og gæddum okkur á þeim ásamt heitu kakói. Dásamlegir dagar þessir vordagar (Fleiri myndir á myndasíðu)
|


