Stefna skólans PDF Prenta Rafpóstur

Hlutverk Egilsstaðaskóla er, í samvinnu við heimili og aðra fræðslu- og uppeldisaðila, að annast menntun barna og unglinga.
Með menntun er átt við að fræða, veita félagslegt uppeldi og stuðla að þroska einstaklinga þannig að þeir verði sem best búnir undir líf og starf í lýðræðisþjóðfélagi sem er í stöðugri þróun.

Eftirfarandi grunngildi eru kjölfesta skólastarfsins.

Jákvæðni
Að taka viðfangsefnum með opnum huga hver sem þau eru.
Sjá eitthvað gott við allt og alla sem við höfum samskipti við.
Að gera sér grein fyrir því að í öllum aðstæðum höfum við val og getum valið að taka markvisst jákvætt á málunum.

Gleði
Gleðin leynist í mörgu, listin er bara að njóta hennar. Glaðlyndi eykur tilhneigingu til að líta annað fólk jákvæðum augum.
Viðhorf til sjálfs sín, annarra og umhverfisins vegur þyngst á vogarskálum gleðinnar. Gleði hefur góð áhrif á líkama og sál.
Það besta við gleðina er löngunin til að deila henni með öðrum.

Fjölbreytni
Hver og einn er einstakur. Þess vegna þarf að hafa fjölbreytni og sveigjanleika að leiðarljósi í skólastarfinu til að mæta mismunandi hæfileikum, áhuga, getu og þörfum nemenda. Fjölbreytni kallar á umburðarlyndi, skilning og gott samstarf.

Virðing
Virðing er megingildi í mannlegum samskiptum. Hún er ekki meðfædd heldur lærð eins og aðrar dyggðir. Mikilvægt er að bera virðingu fyrir sjálfum sér, öðrum og umhverfinu. Skipta má virðingu í innri og ytri virðingu. Innri virðing fæst með þegar einstaklingurinn hefur lært að virða sjálfan sig. Ytri virðing er að bera virðingu fyrir öðrum, setja sig í spor annarra og finna til samkenndar.

Ábyrgð
Sá sem er ábyrgur sinnir starfi sínu af  alúð og trúmennsku og leitast við að leiðbeina öðrum með orðum sínum og gjörðum.  Hann fer eftir leikreglum samfélagsins og hefur að leiðarljósi að koma fram við aðra eins og hann vill að aðrir komi fram við sig. Einstaklingur sem er ábyrgur er jafnframt góð fyrirmynd.

Metnaður
Metnaður er að gera ávallt sitt besta og vera stoltur af verkum sínum.
Hver einstaklingur býr yfir auði í formi sköpunarkrafts, getu og reynslu. Metnaður felst í því að virkja þennan auð til góðra verka.

Samvinna
Allir geta eitthvað, enginn getur allt. Með því að vinna saman nýtum við styrkleika hvers og eins. Samvinna byggir á virðingu fyrir sjónarmiðum annarra og því að geta sett sig þeirra spor. Með samvinnu kynnumst við ólíkum sjónarhornum og aukum víðsýni okkar.


 ALMENN MARKMIÐ:

  •  Að þroska með nemendum aukið sjálfstæði í hugsun, jákvætt hugarfar, umburðarlyndi, tillitssemi og virðingu fyrir öðrum.
  • Að stuðla að góðu samstarfi heimila og skóla og efla skilning nemenda á gildi heimilisins fyrir einstaklinga og fjölskyldur.
  • Að leggja áherslu á góða umgengni.
  • Að efla margvíslega skapandi tjáningu í orði og verki.
  • Að nemendur tileinki sér hollar lífsvenjur og sýni ábyrgð í umgengni við allt líf og umhverfi. 
  • Að veita aðgengilegar og sem gleggstar upplýsingar um hvaðeina sem varðar skólastarfið.
  • Að stuðla að góðum starfsanda og vellíðan allra er við skólann starfa.
  • Að þróa kennsluhætti á þann hátt að viðfangsefnin höfði jafnt til drengja og stúlkna.


  NÁMSMARKMIÐ:

  • Að nemendur afli sér almennrar grunnþekkingar og temji sér vinnubrögð sem stuðla að menntun þeirra og þroska.
  • Að koma til móts við þarfir nemenda miðað við þroska hvers og eins.
  • Að námsefni og námshraði sé við hæfi hvers nemanda.
  • Að nemendur beri ábyrgð á eigin námi og verkum og geti sjálfir lagt mat á vinnu sína og árangur.