Skólaheilsugæsla PDF Prenta Rafpóstur

Skipulag skólaheilsugæslu skólaárið 2009 – 2010

í grunnskólum á Fljótsdalshéraði

Skólaheilsugæsla verður með breyttu sniði í vetur. Skoðanir sem fram að þessu hefur verið boðað til í skólunum fara nú fram á heilsugæslustöðinni á Egilsstöðum í formi heilsufarsviðtala. 

Heilsufarsviðtöl fyrir jól; börn fædd 2000 (4.bekkur) og 1995 (9.bekkur) 

Heilsufarsviðtöl eftir jól; börn fædd árið 2003 (1.bekkur) og 1997 (7.bekkur)

Gert er ráð fyrir að foreldrar komi með börnum sínum en ef vandkvæði eru á því eru þeir beðnir um að láta hjúkrunarfræðing vita.

Barnið verður boðað í viðtal við hjúkrunarfræðing og þá gefst kostur á að ræða þroska þess, heilbrigði og skólafærni.(sjá nánar á næstu síðu) 

Forvarnafræðsla sem hefur verið í bekkjum verður einstaklingsmiðuð og tengd heilsufarsviðtölunum í stað bekkjarkennslu.

Hjúkrunarfræðingar eru ekki með fasta viðveru í skóla en hafa símatíma á mánudögum frá klukkan 14 – 16. Þeir taka við öllum erindum sem varða velferð barna í skólanum.

Einnig er hægt að senda netpóst á Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Á vetri komanda stendur foreldrum til boða fræðsla er varðar heilbrigði barna, vellíðan, öryggi og umönnun. Fræðslan fer fram á heilsugæslustöðinni og verður auglýst nánar síðar.

Hverjir vinna í skólaheilsugæslu

Ragnhildur Rós Indriðadóttir hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir umsjón með 1. – 4. bekk.

Guðbjörg Björnsdóttir hjúkrunarfræðingur umsjón með 5. – 7. bekk.

Halla Eiríksdóttir umsjón með 8. – 10. bekk.

Iðuþjálfarnir Eygló Daníelsdóttiog Selma Klemensdóttir öll skólastig.

Óttar Ármannsson læknir í Egilsstaðaskóla.

Pétur Heimisson læknir í Hallormsstaða- Fella- og Brúarásskóla.

Hanna Eiríksdóttir læknaritari öll skólastig.

Hver gerir hvað?

Iðjuþjálfar taka að sér að meta skólafærni barna á aldrinum 6 - 12 ára aldri samkvæmt  beiðni foreldra, kennara eða heilbrigðisstarfsmanna en samþykki foreldra þarf alltaf að liggja fyrir. Þeir sinna ráðgjöf varðandi félagsfærni og færni til daglegra athafna. 

Hjúkrunarfræðingar sjá um heilsufarsviðtölin, bólusetningar, flúorskolanir og símatíma skólaheilsugæslu. 

Læknar sitja nemendaverndarráðsfundi skólanna.

Læknaritari hefur umsjón með netpóstinum Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það og dreifir honum til viðeigandi hverju sinni. Heldur utan um skráningu, bekkjarskrár og heilsufarsskrár. Sendir út bréf og boðanir eftir þörfum hverju sinni.

 

 

 

 

 

 

 

Grunnskólinn á Egilsstöðum og Eiðum, Hallormsstaðaskóli, Brúarásskóli og Fellaskóli.
Skólaheilsugæslan í þessum skólum heyrir undir HSA á Egilsstöðum.

Skólahjúkrunarfræðingur er  Halla , s. 470 3000.
Skólalæknir er Óttar Ármansson.

Hægt að ná í hann í símatíma á heilsugæslustöðinni í s. 470 3000.

Reglubundnar skoðanir og bólusetningar.

1. bekkur Sjónpróf.
4.  bekkur Sjónpróf, hæðarmæling og þyngdarmæling
7. bekkur Sjónpróf, lytaskynspróf, hæðarmæling og þyngdarmæling. Bólusett gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum ( ein sprauta).
9. bekkur Sjónpróf, heyrnarpróf, hæðarmæling og þyngdarmæling. Bólusett gegn mænusótt, barnaveiki, kíghósti og stífkrampa ( ein sprauta).

Starfssvið skólaheilsugæslunnar er m.a. að  fylgist með heilbrigði og þroska barnanna.
Bent er á, að börn með lesblindu/lestrarörðugleika (dyslexiu) geta haft gagn af augnskoðun hjá augnlækni.
Einnig er fylgst með því að börnin hafi fengið þær bólusetningar sem tilmæli Landlæknis segja til um. Hafi börnin ekki fengið þessar bólusetningar, er haft samband við foreldra. Skipulagðri heilbrigðisfræðslu í öllum bekkjardeildum skólanna er sinnt, sem og  boðið  upp á flúorskolun tanna í 1. 7. og 10. bekk. Skolunin er framkvæmd á skólatíma og mun skólahjúkrunarfræðingur framkvæma skolunina í samvinnu við starfsfólk skólans. Skolunin er foreldrum að kostnaðarlausu.
Fyrirhuguð eru viðtöl við börn og foreldra í 1. bekk eftir áramót. Nánari upplýsingar koma síðar.
Á vegum skólaheilsugæslunnar er einnig starfrækt Lífsstílsteymi fyrir of þung og of feit börn, þar sem áhersla er lögð á hreyfingu og hollt mataræði.

Hafi foreldrar athugasemdir eða spurningar við ofangreint, eru þeir beðnir um að hafa samband við skólahjúkrunarfærðing.
Með kveðju og ósk um gott samstarf

 

Bréf til foreldra varðandi skólaskoðanir barna í 1., 4., 7. og 9. bekk